NATO án Bandaríkjanna Arnór Sigurjónsson skrifar 22. apríl 2026 07:46 NATO án Bandaríkjanna er raunveruleg sviðsmynd í varnarmálum Evrópu í dag. Það hefðu flestir talið óhugsandi veruleika áður en núverandi forseti Bandaríkjanna flutti í Hvíta húsið. En á rúmu ári hefur honum tekist að rýra trúverðugleika bandalagsins með hótunum um úrgöngu, ásökunum um hugleysi leiðtoga Evrópuríkja og almennt gagnsleysi þeirrar stofnunar sem hann kallar pappírstígrisdýr en við þekkjum sem NATO. Grænlandsmálið er svo sérstakur kapítali út af fyrir sig. Þó svo að margir haldi í þá von að betri forseti Bandaríkjanna taki við 2028 og þar með komi bjartari tímar með nýjum öflugum leiðtoga er ekki víst að svo fari. Eitt er þó borðleggjandi. Samheldnin og traustið sem hefur verið lím Atlantshafsbandalagsins hefur beðið hnekki og trú aðildarríkjanna á vilja og getu Bandaríkjamanna til að veita bandalaginu forystu er í uppnámi. Fari svo að forseti Bandaríkjanna geri alvöru úr hótun sinni að draga Bandaríkin út úr bandalaginu mun það straks hafa mikil og alvarleg áhrif á öryggi og varnir allra aðildarþjóðanna, þ.m.t. talið Íslands. Jafnvel þó svo að bandaríska þingið neiti að staðfesta þá ákvörðun forsetans, mun yfirlýsing hans um úrsögn jafngilda upplausn Atlantshafsbandalagsins í þeirri mynd sem við þekkjum í dag. Gleymum ekki að hernaðarmáttur Bandaríkjanna hefur verið meginstoð bandalagsins frá upphafi og þó svo að Evrópuþjóðirnar séu nú að bæta eigin varnir verulega mun það taka nokkur ár þar til þær verða komnar í sæmilegt horf. Fyrir utan kjarnorkuvopnafælingu Bandaríkjanna hafa þeir yfirburði í fjölda langdrægra flutningavéla, gerfihnatta tengdum upplýsingakerfum og orustuflugvélum af fullkomnustu gerð. Framlög Bandaríkjanna til reksturs Atlantshafsbandalagsins er um 27% og hernaðamáttur þeirra er metin á önnur 70%. Hvaða valkosti hefur Evrópa og Kanada í öryggis- og varnarmálum án aðkomu Bandaríkjanna? Einn augljós valkostur er að halda áfram starfsemi bandalagsins þó svo að það verði í smækkaðri mynd og fælingarmátturinn takmarkaður. Það þyrfti að minnka herstjórnarkerfið, loka herstöðvum og segja upp borgaralegum starfsmönnum. Annar valkostur og sá sem er líklegastur er að Evrópusambandið taki öryggis- og varnarmál Evrópu fastari tökum og yfirtaki þá þætti starfsemi NATO sem skipta mestu máli, þ.e. samhæfða herstjórnarkerfið sem staðsett er í Mons, Belgíu ásamt fleiri löndum og loftvarnarkerfið sem hefur verið þróað í áratugi og Ísland er hluti af. Sjóherstjórn í Norfolk sem nær m.a. til Íslands yrði að öllum líkindum lögð niður enda undir forystu Bandaríkjamanna. Það eru tvær meginástæður fyrir því að þessi þróun evrópskra varnarmála er líkleg til að fá stuðning Evrópuþjóða frekar en að halda lífi í smækkaðri mynd af NATO. Í fyrsta lagi er stór hluti núverandi aðildarþjóða NATO meðlimir Evrópusambandsins og því auðvelt að efla þá endurreisn varnarmála sem ESB hefur hafið. Í öðru lagi að þá hefur ESB fjármagn sem mun skipta sköpum hvað varnir Evrópu varðar og það fé sem nú rennur til starfsemi NATO væri betur nýtt innan sambandsins. Hvað Ísland varðar að þá munum við standa frammi fyrir þeirri tilvistarspurningu hvað við eigum að gera við þessar kringumstæður í ljósi þess að varnarstefna Alþingis kveður á um algjöra útvistun á öryggis- og varnarmálum þjóðarinnar til Bandaríkjanna og NATO. Íslendingar ætla samkvæmt þessari stefnu ekki að verja fullveldi og sjálfstæði þjóðarinnar. Það eiga aðrir að gera. Höfundur er sérfræðingur í varnarmálum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Arnór Sigurjónsson NATO Öryggis- og varnarmál Mest lesið Halldór 5.9.2026 Agnar Már Másson Halldór Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Er kostnaðurinn einskis virði? Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi þess að lifa æskuna af Einar Torfi Einarsson Reynis skrifar Skoðun Hvað ef svarið hefði verið já? Eva Magnúsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar