Sumir sáttir en flestir keppast við að tæta Michael í sig Jón Þór Stefánsson skrifar 23. apríl 2026 10:49 Jaafar Jackson leikur frænda sinn Michael Jackson. Ný ævisögumynd um Michael Jackson, konung poppsins, fær misjafna dóma. Og í meira lagi eru þeir neikvæðir.
Í myndinni, sem ber titilinn Michael og er leikstýrt af Antoine Fuqua, er farið yfir fyrri hluta ferils Jackson, frá dögunum í fjölskyldusveitinni The Jackson 5 fram til loka níunda áratugarins þegar hann var orðinn heimsfræg poppstjarna. Jaafar Jackson, raunverulegur frændi poppkonungsins, fer með aðalhlutverkið. Owen Gleiberman, gagnrýnandi Variety, hrósar myndinni, og þá sérstaklega frammistöðu Jaafars sem að hans sögn límir myndina saman. Gleiberman segir þó að myndin tækli ekki skuggahliðar Michaels Jackson, líkt og ásakanir á hendur honum um barnaníð. David Rooney, hjá Hollywood Reporter, er líka jákvæður, og segir að allir þeir sem finni fyrir nostalgíu vegna tímabilsins sem fjallað er um í myndinni verði ekki sviknir. Peter Bradshaw, gagnrýnandi The Guardian, segir myndina vera eins og 127 mínútna langa stiklu sem innihaldi allar klisjur sem tengdar hafi verið við tónlistar-ævisögumyndir. Nicholas Barber, hjá BBC, fer hörðum orðum um Michael, og telur að hér sé um að ræða eina verstu mynd ársins. „Þetta er slæmt. Þetta er slæmt. Þetta er mjög, mjög slæmt,“ skrifar Barber. Hann bendir á að til þess að fá að gera mynd um fígúru líkt og Michael Jackson þurfi grænt ljós frá fjölskyldu hans. Hann segir að þrátt fyrir það komi það sér á óvart hversu óspennandi myndin sé, hún sé varla nægilega góð til að vera sýnd í sjónvarpi meðan fólk sé í vinnu. Johnny Oleksinski, hjá New York Post, tekur í sama streng. „Það sem ég var ekki að búast við í bíómynd um mögulega mesta skemmtikraft allra tíma var að hún yrði svona laus við alla skemmtun.“ Myndin snertir á ofbeldi Joes Jackson, föður Michaels, í garð sonar síns. Alissa Wilkinson, gagnrýnandi New York Times, segir niðurstöðuna þó vera þá að myndin sé einmitt eins og Joe hefði viljað hafa hana: Þar sem Michael birtist sem fullkomið barn, magnaður skemmtikraftur, og ekkert meira en það.
Bíó og sjónvarp Tónlist Hollywood Tengdar fréttir Ný mynd um Jackson í uppnámi vegna dómsáttar frá 1993 Ný mynd um Michael Jackson er skyndilega í lausu lofti, rétt eftir að tökur kláruðust, vegna klásúlu í dómsátt popparans við fjölskyldu tánings sem sakaði popparann um áreitni árið 1993. Málið átti að vera lykilatriði í myndinni en umfjöllun um það brýtur í bága við samning Jackson og fjölskyldunnar. 27. janúar 2025 00:20 Bob og Robbie í bobba Um þessar mundir eru tvær myndir um heimsfræga tónlistarmenn í bíó. Önnur er fagmannlega gerð og vel leikin en skilur lítið eftir sig. Hin er fullkomið dæmi um hvernig má lífga upp á lúna kvikmyndagrein með skýrri listrænni sýn, skapandi sviðsetningu og kóreógrafíu. 10. febrúar 2025 07:00 Mest lesið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Skemmtileg leið til að halda minningunni á lífi Menning Stundum gott að fara öruggu leiðina Tíska og hönnun Patrick Stewart látinn Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Spesíur Elenoru: Jólaklassík sem tekur aðeins 30 mínútur Lífið samstarf Erna Mist og Þorleifur selja Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Keppast um að minnast Stewarts Lífið Fleiri fréttir Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Sjá meira
Ný mynd um Jackson í uppnámi vegna dómsáttar frá 1993 Ný mynd um Michael Jackson er skyndilega í lausu lofti, rétt eftir að tökur kláruðust, vegna klásúlu í dómsátt popparans við fjölskyldu tánings sem sakaði popparann um áreitni árið 1993. Málið átti að vera lykilatriði í myndinni en umfjöllun um það brýtur í bága við samning Jackson og fjölskyldunnar. 27. janúar 2025 00:20
Bob og Robbie í bobba Um þessar mundir eru tvær myndir um heimsfræga tónlistarmenn í bíó. Önnur er fagmannlega gerð og vel leikin en skilur lítið eftir sig. Hin er fullkomið dæmi um hvernig má lífga upp á lúna kvikmyndagrein með skýrri listrænni sýn, skapandi sviðsetningu og kóreógrafíu. 10. febrúar 2025 07:00