Þjálfari Patriots í leynilegu ástarsambandi með blaðamanni í mörg ár Ágúst Orri Arnarson skrifar 24. apríl 2026 07:04 Dianna Russini og Mike Vrabel virðist hafa verið að slá sér upp í nokkuð langan tíma. Þjálfari New England Patriots í NFL deildinni og háttsett blaðakona hjá The Athletic virðast hafa átt í leynilegu ástarsambandi um árabil. Hann hélt starfinu en hún er orðin atvinnulaus.
Leynilegt ástarsamband þjálfarans Mike Vrabel og blaðakonunnar Dianna Russini var gert opinbert af bandarísku slúðurblöðunum Page Six og TMZ nýlega. Þau eru bæði gift öðru fólki og lentu því í klandri þegar myndir birtust af þeim leiðast, knúsast og kyssast á lúxushóteli í Arizona í byrjun þessa mánaðar. Vrabel og Russini reyndu fyrst að gera lítið úr málinu og sögðu þetta hafa verið saklausan vinahitting. En í síðustu viku viðurkenndi Russini hvað hefði gengið á og sagði starfi sínu lausu hjá The Athletic. Vrabel hélt blaðamannafund í gærkvöldið rétt fyrir nýliðaval NFL-deildarinnar þar sem hann viðurkenndi framhjáhaldið. Hann hélt þjálfarastarfi sínu hjá Patriots og reynir nú að bæta fjölskyldunni þetta allt saman upp. Nú virðist vera komið í ljós að þetta leynilega ástarsamband teygir sig töluvert lengra aftur í tímann en upphaflega var talið. 😳 EXCLUSIVE: Mike Vrabel and Dianna Russini were all smiles at a casino weeks after his Titans firing back in 2024.Take a look: https://t.co/lfv3Bi2hzM pic.twitter.com/ubQArJnUXH— TMZ (@TMZ) April 23, 2026 TMZ hefur birt myndir af þeim í spilavíti í Mississippi árið 2024 og Page Six svaraði með því að birta myndir af þeim frá árinu 2020. Ef rétt reynist hafa þau verið í sambandi síðustu sex ár að minnsta kosti. Á þeim tíma hefur Vrabel eignast tvö börn með eiginkonu sinni. Russini gekk í hjónaband síðar á árinu 2020 og hefur verið gift síðustu sex árin tæplega. Hún eignaðist son árið 2021 sem hún skírði Michael, í höfuðið á hverjum er ekki vitað fyrir víst. Dianna Russini and married Mike Vrabel caught kissing at NYC bar in bombshell new photos — taken 6 years before scandal https://t.co/WIPOoGKAWF pic.twitter.com/4j1UpviNuy— New York Post (@nypost) April 23, 2026
NFL Mest lesið Benedikt birtir mynd frá slysstað Handbolti Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Enski boltinn Senuþjófurinn á Höfn slær í gegn: „Búin að missa humarinn og jöklarnir að bráðna“ Körfubolti Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Enski boltinn Drungilas lengi frá: „Þetta er drullufúlt“ Körfubolti Í sjokki eftir „stjörnugalna“ frammistöðu: „Eins og hjá byrjendum“ Körfubolti Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas Enski boltinn Bakgarðsáskorunin: Pissustaðurinn reyndist vera beint fyrir framan myndavélina Sport Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Enski boltinn Ósáttur við framkomu stuðningsmanna meðan hann fékk aðhlynningu Íslenski boltinn Fleiri fréttir Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Daníel og Mikael gátu loksins fagnað saman Í beinni: KR-Njarðvík | Heldur sigurganga KR áfram? Sjáðu íslensku eldflaugina frá DJ Sigga Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas Fá marbletti og gefa marbletti: „Klárar í slagsmál“ „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ „Svo lélegt að Þorgrímur Þráins var næstum byrjaður að reykja“ Drungilas lengi frá: „Þetta er drullufúlt“ Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Í sjokki eftir „stjörnugalna“ frammistöðu: „Eins og hjá byrjendum“ Þjálfari Hauks rekinn Glódís og Þorsteinn sátu fyrir svörum Heitur HM draumur og mega ekki slaka á: „Getur allt farið til fjandans“ Senuþjófurinn á Höfn slær í gegn: „Búin að missa humarinn og jöklarnir að bráðna“ Lögðu til átta milljóna króna stofnframlag Sjáðu mörkin úr Víkinni og Höskuld halda vel upp á stóran áfanga Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Bakgarðsáskorunin: Pissustaðurinn reyndist vera beint fyrir framan myndavélina Mikil óvissa um þátttöku Alberts í mikilvægum landsleikjum Sjáðu mörkin: Sekt City sló leikmenn ekki út af laginu Benedikt birtir mynd frá slysstað Fyrsta til að vinna á heimavelli og fagnaði með söng Dagskráin í dag: Íslandsmeistararnir fara í Vesturbæinn Hlustaði ekki á liðið og baðst afsökunar Valgeir þurfti fjórar mínútur til að skora fyrsta mark sitt fyrir Viborg Ósáttur við framkomu stuðningsmanna meðan hann fékk aðhlynningu „Áttum mun meira skilið úr þessum leik“ „Flott frammistaða miðað við aðstæður“ „Ég veit alveg hvað í mér býr og ætla að sýna það“ Sjá meira