Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Kjartan Kjartansson skrifar 24. apríl 2026 11:03 Ólína Þorvarðardóttir Kjerúlf tók við sem rektor Háskólans á Bifröst eftir að Margrért Jónsdóttir Njarðvík steig til hliðar eftir róstursamar vikur í vetur. Vísir/Vilhelm Háskólinn á Bifröst er sagður hafa ráðið aftur starfsmann sem var rekinn í sömu viku og rektor vísaði máli hans til siðanefndar skólans í vetur. Núverandi rektor segir starfsmanninn hafa verið borinn röngum sökum.
Ríkisútvarpið segir frá því að starfsmaðurinn hafi verið ráðinn aftur til starfa við skólann. Ólína Þorvarðardóttir Kjerúlf, rektor skólans, staðfesti það við ríkisfjölmiðilinn. Starfsmaðurinn var einn þriggja sem Margrét Jónsdóttir Njarðvík, þáverandi rektor, lét siðanefnd skólans rannsaka vegna fræðigreina sem þeir voru titlaðir meðhöfundar að í vetur. Siðanefnd hreinsaði starfsmennina af sök. Málið olli miklu fjaðrafoki á Bifröst en Félag akademískra starfsmanna lýsti yfir vantrausti á rektor og tvo aðra stjórnendur vegna þess. Gagnrýndi félagið meðal annars að stjórnendur hefðu látið gervigreindarforrit meta hvort starfsmennirnir hefðu lagt nægilega mikið af mörkum til greinanna til þess að verðskulda höfundarmerkingu. Margrét lét af störfum sem rektor fyrr á þessu ári. Í sömu viku og starfsmönnunum þremur var greint frá því að þeir væru til skoðunar var einn þeirra rekinn. Ástæðan var sögð trúnaðarbrestur þar sem hann hefði kennt áfanga við annan skóla. Samskiptastjóri skólans sagði Vísi í febrúar að brottreksturinn hefði verið alls ótengdur siðanefndarmálinu. Borinn röngum sökum Ólína, núverandi rektor, segir starfsmanninn sem um ræðir ekki hafa brotið af sér. „Maðurinn hefur verið hreinsaður af siðanefnd skólans af rangri sök sem var borin upp á hann,“ skrifar Ólína í Facebook-færslu þar sem hún gagnrýnir harðlega frétt RÚV af endurráðningu mannsins. Rektorinn greinir engu að síður frá því í frétt RÚV að Félag akademískra starfsmanna hafi samþykkt að draga til baka vantraust á rannsóknarstjóra skólans. RÚV segir að hann sé eini af stjórnendunum þremur sem hófu siðanefndarmálið sem sé enn við dagleg störf við skólann.
Deilur í Háskólanum á Bifröst Háskólar Skóla- og menntamál Tengdar fréttir Segja gögn um verktakagreiðslur tekin úr samhengi Samskiptastjóri Háskólans á Bifröst segir í yfirlýsingu frá skólanum að verktakagreiðslur til fastráðinna starfsmanna eigi sér ekki stað við háskólann. Skólinn harmar að einstaka starfsmenn séu nafngreindir í umfjöllun RÚV um verktakagreiðslur og segir gögn tekin úr samhengi. 10. febrúar 2026 18:25 Rektor Háskólans á Bifröst segir af sér Margrét Njarðvík Jónsdóttir, rektor Háskólans á Bifröst, ætlar að víkja úr starfi. Mikið hefur gengið á innan veggja skólans eftir að þrír starfsmenn voru kærðir til siðanefndar. 9. febrúar 2026 20:11 „Vísun máls til siðanefndar getur ekki talist aðför“ „Vísun máls til siðanefndar getur ekki talist aðför, enda eru slík mál ekki gerð opinber af hálfu háskóla. Háskólinn á Bifröst hefur enga heimild til að reka siðarnefndarmál opinberlega. Viðbrögð Háskólans á Bifröst við umfjöllun í fjölmiðlum síðustu vikna verða því að skoðast í því ljósi.“ 9. febrúar 2026 06:47 Starfsmenn Bifrastar hreinsaðir af öllum sökum Siðanefnd Háskólans á Bifröst hefur hreinsað þrjá starfsmenn af öllum ásökunum. Rektor skólans bað siðanefndina um að kanna hvort starfsmennirnir hefðu verið ranglega skráðir sem meðhöfundar að greinum. 6. febrúar 2026 15:26 Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Marius látinn laus Erlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent Fleiri fréttir Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Sjá meira
Segja gögn um verktakagreiðslur tekin úr samhengi Samskiptastjóri Háskólans á Bifröst segir í yfirlýsingu frá skólanum að verktakagreiðslur til fastráðinna starfsmanna eigi sér ekki stað við háskólann. Skólinn harmar að einstaka starfsmenn séu nafngreindir í umfjöllun RÚV um verktakagreiðslur og segir gögn tekin úr samhengi. 10. febrúar 2026 18:25
Rektor Háskólans á Bifröst segir af sér Margrét Njarðvík Jónsdóttir, rektor Háskólans á Bifröst, ætlar að víkja úr starfi. Mikið hefur gengið á innan veggja skólans eftir að þrír starfsmenn voru kærðir til siðanefndar. 9. febrúar 2026 20:11
„Vísun máls til siðanefndar getur ekki talist aðför“ „Vísun máls til siðanefndar getur ekki talist aðför, enda eru slík mál ekki gerð opinber af hálfu háskóla. Háskólinn á Bifröst hefur enga heimild til að reka siðarnefndarmál opinberlega. Viðbrögð Háskólans á Bifröst við umfjöllun í fjölmiðlum síðustu vikna verða því að skoðast í því ljósi.“ 9. febrúar 2026 06:47
Starfsmenn Bifrastar hreinsaðir af öllum sökum Siðanefnd Háskólans á Bifröst hefur hreinsað þrjá starfsmenn af öllum ásökunum. Rektor skólans bað siðanefndina um að kanna hvort starfsmennirnir hefðu verið ranglega skráðir sem meðhöfundar að greinum. 6. febrúar 2026 15:26