Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Árni Sæberg skrifar 24. apríl 2026 11:59 Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair. Vísir/Vilhelm Icelandair stofnaði fyrr á árinu nýtt dótturfélag, Icelandair Third Party Technical Services, í Vilníusi í Litáen, sem annast mun skipulag og eftirlit með viðhaldi flugvéla sem eru í langtímaleigu hjá erlendum viðskiptavinum Loftleiða, leiguflugsarms Icelandair. Dótturfélagið hefur meðal annars auglýst eftir sérfræðingum í viðhaldsstjórnun. Unnið er að endurskipulagningu deildarinnar sem sinnt hefur sömu verkefnum hér á landi en engum hefur verið sagt upp störfum.
Edvinas Geležinis, starfsmaður dótturfélagsins í Litáen, birti á dögunum starfsauglýsingu á viðskiptasamfélagsmiðlinum Linkedin á dögunum, þar sem hann auglýsir eftir sérfræðingum í viðhaldsstjórnun (CAMO), sérfræðingum í viðhaldsáætlanagerð og sérfræðingum í viðhaldsgagnastjórnun. Engum sagt upp og ekki liggi fyrir hversu margir varða ráðnir Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, staðfestir að auglýsingin er á vegum dótturfélagsins, í svari við fyrirspurn Vísis. Markmiðið með stofnun dótturfélagsins sé fyrst og fremst að styrkja og þróa leiguverkefni félagsin og aðgreina þau betur frá öðrum verkefnum Icelandair. Unnið sé að endurskipulagningu deildarinnar sem sinnti þessum verkefnum ásamt öðrum en engum hafi verið sagt upp í tengslum við stofnun dótturfélagsins. Unnið sé að því að setja upp skipulag félagsins í Vilníus og því liggi hvorki fyrir á þessum tímapunkti hversu margir munu starfa hjá því né í hvaða hlutverkum. Fimmtán á fyrsta starfsárinu Invest Lithuania, stofnun sem vinnur að því að laða erlenda fjárfestingu til Litáen, greindi í gær frá áformum Icelandair í Vilníusi. Þar er haft eftir áðurnefndum Geležinis að skrifstofa dótturfélagsins verði opnuð í maí og til standi að ráða fimmtán starfsmenn á fyrsta starfsárinu. „Í Litáen er sterk flugmenning og djúp tækniþekking sem erfitt er að finna annars staðar á svæðinu. Við sjáum hér frábær tækifæri til að styðja við Icelandair og viðskiptavini þess um allan heim og til að auka enn frekar þjónustu okkar við þriðju aðila án þess að trufla kjarnastarfsemi flugfélagsins,“ er haft eftir honum.
Fréttir af flugi Litáen Icelandair Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira