Jasmín Erla: „Mér fannst við bara helvíti góðar“ Árni Jóhannsson skrifar 24. apríl 2026 21:37 Jasmín Erla Ingadóttir skoraði sigurmark Víkings í kvöld í sínum fyrsta leik eftir vistaskiptin úr Val. Vísir/Anton Brink Jasmín Erla Ingadóttir var hetja Víkings í hennar fyrsta leik með liðinu. Hún skoraði sigurmarkið gegn Stjörnunni í fyrstu umferð Bestu deildar kvenna en leikið var í Víkinni. Leikurinn endaði með 2-1 sigri Víkings. „
Ég gæti ekki verið betri. Ótrúlega gaman að vera komin í Hamingjuna og byrja svona vel“, sagði Jasmín þegar hún var beðin um að lýsa tilfinningunni að ná í sigur í fyrsta leik og að hafa skorað í fyrsta leik. Jasmín var ánægð með liðið í kvöld en hvernig náði Víkingur í sigurinn? „Mér fannst við bara helvíti góðar. Auðvitað var þetta kaflaskipt en við fengum miklu betri færi og mér fannst við geta sett eitt eða tvö í viðbót jafnvel.“ Jasmín skoraði eins og áður sagði og var beðin um að lýsa markinu en hún var grunsamlega ein á fjær stönginni þegar boltinn barst til hennar. „Ég bara kom mér þokkalega í miðjuna og boltinn barst til mín. Ég er bara glöð yfir því.“ Hvernig sér Jasmín fyrir sér varðandi þetta tímabil? Hversu langt getur Víkingur farið í sumar? „Við getum bara farið eins langt og við ætlum okkur. Þetta er allt undir okkur komið. Við erum með helvíti gott lið. Við erum öflugar og erum með gæði. Við erum léttar og það er kraftur í okkur. Þannig að ég er spennt fyrir þessu sumri.“ Voru það einhverjir af þessum eiginleikum sem hún lýsir sem heilluðu hana við Víking? „Algjörlega. Ég vissi það að ef ég ætlaði að fara í eitthvað annað lið á Íslandi þá myndi ég fara til Víkings. Það kom ekki annað til greina.“
Víkingur Reykjavík Besta deild kvenna Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Fyrstur síðan David Robinson var og hét Körfubolti Fleiri fréttir Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Sjá meira