Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Eiður Þór Árnason skrifar 28. apríl 2026 23:37 Steingrím Arnar Finnsson, fráfarandi forstjóri Fossa. Aðsend Stjórn Fossa fjárfestingarbanka hefur samið við Steingrím Arnar Finnsson um starfslok en hann hefur verið forstjóri Fossa frá árinu 2023. Brynjar Þór Hreinsson tekur við eftir að hafa verið fjármálastjóri móðurfélagsins Skaga hf. frá árinu 2023. „
Ekki verður ráðið í starf fjármálastjóra samstæðu í stað Brynjars og jafnframt er gert er ráð fyrir að tilfærsla verkefna, kostnaðarhagræði og einföldun á starfsemi móðurfélags skili allt að 180 milljónum króna í árlega lækkun kostnaðar á samstæðugrunni,“ segir í tilkynningu Skaga til Kauphallar. Vátryggingafélag Íslands (VÍS) og Íslensk verðbréf eru hluti af samstæðu Skaga auk Fossa. Stjórn Skaga er sögð hafa samþykkt uppfærðar áherslur í stefnu félagsins sem miði að því að auka arðsemi eftir umbreytingar síðustu ára en VÍS keypti Fossa árið 2023. „Niðurstaðan eru aðgerðir í átt að einfaldara stjórnskipulagi og auknu hagræði af rekstri samstæðunnar. Þá verður ráðist í sértæk verkefni sem miða að því að nýta styrkleika samstæðunnar til að ná fram hagkvæmari fjármagnsskipan og auka samningsbundnar tekjur í fjármálastarfsemi.“ Með breytingunum stígi Brynjar úr hlutverki fjármálastjóra Skaga en sitji áfram í framkvæmdastjórn Fossasamstæðunnar. Hann er sagður taka við forstjórastöðunni frá og með næstu mánaðamótum. „Steingrímur mun vera félaginu áfram til ráðgjafar í þágu lykilviðskiptasambanda, þróunar viðskipta við erlenda aðila og annarrar tekjusköpunar félagsins,“ segir í tilkynningu. „Upp er runninn rétti tíminn fyrir mig til að segja skilið við forstjórastól Fossa fjárfestingarbanka. Ákvörðunin byggir bæði á rýni á stefnu Skaga og þeim áhuga mínum á að nýta krafta mína að hluta til annars konar verkefna. Við tekur nýtt og spennandi ráðgjafahlutverk fyrir Fossa með áherslu á uppbyggingu erlendra tengsla þar sem mikil tækifæri eru til sóknar,“ er haft eftir Steingrími. Fréttin er í vinnslu.
Skagi Vistaskipti Mest lesið Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Viðskipti innlent Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Viðskipti innlent Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Viðskipti innlent Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Furstadæmin yfirgefa OPEC Viðskipti erlent Fullt af fólki að vinna við eitthvað sem skiptir ekki máli Atvinnulíf Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Viðskipti innlent Nú er tíminn fyrir þak og klæðningar: „Við horfum á veðrið, ekki dagatalið“ Samstarf Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Viðskipti innlent Afkomuöryggi allan hringinn með FLM Samstarf Fleiri fréttir Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sjá meira