Lífið

Stór brjóst eru stór

Sif Sigmarsdóttir skrifar
Sif Sigmarsdóttir er með vikulega pistla á Vísi.
Sif Sigmarsdóttir er með vikulega pistla á Vísi. Vísir/Sara Rut

Hin árlega Wireless tónlistarhátíð, sem fara átti fram í sumar í almenningsgarði skammt þar frá sem ég bý í London, hefur verið blásin af. Er það gert í kjölfar þess að rapparanum Kanye West, aðalstjörnu hátíðarinnar, var synjað um rafrænt ferðaleyfi til Bretlands vegna ásakana um að hann sé nasisti.

Hafi hugsjónir tengdar tjáningarfrelsi flögrað að einhverjum íbúa hverfisins koðnuðu þær hratt. Hver fórnaði ekki rétti manns til að syngja lagið Heil Hitler og selja stuttermaboli með mynd af hakakrossinum fyrir þau þægindi að þurfa ekki að horfa upp á vankaða tónleikagesti með kebab út á kinn míga utan í húsveggi þar sem maður skutlaðist með börnin á fótboltaæfingu snemma á laugardagsmorgni.

Kanye er ekki fyrsti gesturinn, sem sætir svo óblíðum móttökum breskra stjórnvalda. Árið 2018 var hinni kanadísku Lauren Southern, ungum öfga-hægri áhrifavaldi, neituð landganga. Þótti viðvera hennar, eins og Kanye, „ekki þjóna almannahag“ – Southern hafði áður valdið usla í bænum Luton með dreifingu bæklings þar sem Allah var sagður hommi.

Ekki var hins vegar allt sem sýndist.

Bresk stjórnvöld sögðu það „ekki þjóna almannahag“ að veita rapparanum Kanye West ferðaleyfi til landsins.GETTY

Athyglisfíkn

Í viðtali við breska dagblaðið The Times í síðasta mánuði viðurkenndi Lauren Southern að hún hefði ekki alltaf meint það sem hún sagði.

Hún kvað undirrót öfgafullra skoðana sinna hafa verið þrá eftir athygli. Hún hafi verið athyglisfíkill, sem lék sér að því að ganga fram af fólki til að vekja á sér eftirtekt.

Fáni frá því í fyrra

Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, vakti heldur betur á sér eftirtekt nýverið þegar hann viðraði á þingi djúpar áhyggjur af regnbogafánum sem hann hefði séð bregða fyrir í ótilgreindum skóla í fyrra.

Snorra Mássyni er enn hugleikinn fáni sem hann sá í fyrra.vísir/vilhelm

Dögum saman baðaði Snorri sig í athyglinni sem fylgdi hneykslun fólks yfir fullyrðingum hans þess efnis að fáninn væri ekki „tákn umburðarlyndis“ heldur tákn „hugmyndafræðilegrar undirgefni“.

Sumir veltu þó fyrir sér hvort markmið hans með uppþotinu væri annað en að fækka fánum í skólastofum.

„Snorri veit nákvæmlega hvað hann er að gera með þessu,“ sagði Daníel E. Arnarsson, fyrrverandi framkvæmdarstjóri Samtakanna 78, í Facebook-færslu og sakaði þingmanninn um að „búa til hávaða“.

„Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ skrifaði Jóhannes Þór Skúlason, núverandi stjórnarmaður í Samtökunum 78 sem áður var aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar.

Þetta finnst mér um stór brjóst

Þessi pistill átti ekki að fjalla um Snorra Másson. Hann átti að fjalla um stór brjóst. Ekki vegna þess að ég hafi sterka skoðun á stórum brjóstum eða hafi margt annað um þau að segja en að stór brjóst séu ... stór.

Mælingar sýna hins vegar að fólk smellir í stórum stíl á greinar um stór brjóst. Sérstaklega ef þeim fylgir mynd.

Á tímum þar sem næstum allt er mælanlegt – meðalhraði morgunskokksins, vinafjöldinn á samfélagsmiðlum, lækin og athyglin – trompar magn gæði.

Hér áður fyrr kepptu þingmenn – og pistlahöfundar – að virðingu. En það sem ekki rúmast í grafi um smellhlutfall verður ekki svo auðveldlega í askana látið.

Spretthlauparar á sterum

Halla Hrund Logadóttir, þingmaður Framsóknar, kvaðst í viðtali í síðustu viku oft koma heim úr vinnunni eftir „mjög góðar umræður um ýmis mál á þingi“, kveikja á fréttunum og ekkert kannast við lýsingarnar á vinnustað sínum. Sagði hún aðeins stórar fyrirsagnir og ósætti rata í fjölmiðla.

Halla Hrund Logadóttir kannast ekki við vinnustað sinn eins og hann birtist í fréttum.Vísir/Vilhelm

Stjórnmál eru ekki lengur uppspretta athyglinnar heldur öfugt: Athyglin er farin að stýra stjórnmálunum.

Kepptist Kanye West við að lýsa yfir aðdáun á Adolf Hitler ef það héldi honum ekki í deiglunni þrátt fyrir hnignandi tónlistarferil? Hefði Lauren Southern predikað um kynhneigð Allah tryggði það henni ekki frægð á internetinu? Skrifaði ég um stór brjóst ef það bætti ekki smellhlutfall pistla minna jafnmikið og sterar tíma spretthlaupara?

Snorra Mássyni er vorkunn. Það eru að koma sveitarstjórnakosningar og keppnin um athyglina er hörð. Maður toppar varla dúdda sem ekur um göngugötur og furðar sig á að finna engin bílastæði.

Eða hvað?

Léti Snorri regnbogafána, sem hann sá í fyrra, fara í taugarnar á sér ef það ærði ekki lýðinn?


Tengdar fréttir

Ísland: „Lauslátasta nunnan í klaustrinu“

Þegar ég fullyrti við breskan vin minn að Ísland væri spilltasta ríki Norðurlanda skellihló hann. Honum fannst lítið til áþjánar landsmanna koma og sagði: „Að vera spilltasta ríkið á Norðurlöndum er eins og að vera lauslátasta nunnan í klaustrinu.“

Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur

Það hafði verið fróm ósk barnanna að við færum á frumsýningu nýju Super Mario myndarinnar í páskafríinu. Þar sem ég gekk út úr bíósal í London og hugsaði „hvar hafa dagar lífs míns lit sínum glatað“ barst mér tilkynning í símann. Kvikmyndagagnrýnandi dagblaðsins The Times hafði birt harðorðan dóm um myndina. Kallaði hann verkið innantóma markaðssetningarælu sem sýndi hversu undirseld hórdómi vinsældanna við værum orðin. Gaf hann myndinni núll stjörnur.

Páskar: Ef þú mættir velja einhvern til að krossfesta

Á páskum fagna því væntanlega ýmsir að Guð hafi gefið son sinn eingetinn, svo að hver sem á hann trúir glatist ekki, heldur hafi eilíft líf. Þeir eru þó sennilega fleiri sem fagna því að fá frí í vinnunni, þar sem lífið virðist oft sannarlega eilíft.

Sjálfskipaður Yoda okkar Íslendinga hefur rangt fyrir sér

Eitt má Donald Trump Bandaríkjaforseti eiga: Hann er góður landafræðikennari. Þótt gáfulegir stjórnmálaskýrendur tali eins og þeir hafi fæðst með vitneskjuna um hvar Hormús-sund er að finna á korti, höfðu fæst okkar heyrt af þessari lífæð nútímans fyrr en í síðasta mánuði – þar með talinn Trump sjálfur, af atburðum síðustu vikna að dæma.

Gagnrýni: Veruleikinn fær falleinkunn. Stóð upp í hléi

Ef veruleikinn hefði hlotið tilnefningu til Óskarsverðlaunanna, sem fram fóru á sunnudaginn, hefðu aðstandendur hans komið tómhentir heim. Klén tragikómedía um stríð, veðrið og verðbólgu vekur fáar aðrar tilfinningar en löngun til að labba út í hléi. Hvernig nokkrum datt í hug að leggjast í gerð verksins sætir furðu.

Þegar fólk var skotmarkið í safaríferð

Fyrrverandi sjónvarpsmaðurinn, Pete Hegseth, sem nú fer með hlutverk varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, tjáði sig glaðhlakkalegur á fréttamannafundi í síðustu viku um stríðsaðgerðir Bandaríkjanna og Ísraels gegn Íran. Sagði hann Írani búna að vera – eða eins og upptendraður unglingur sem spilaði tölvuleiki með vinum sínum í stofunni hjá mömmu sinni myndi orða það eftir aðeins of margar dósir af Pepsi Max: Hann sagði að þeir væru „toast“.

Er Jón Gnarr búinn að horfa aðeins of oft á Pretty Woman?

Árið 2002 heyrði Andrew Norfolk, blaðamaður málefna Norður-Englands hjá The Times, orðróm um skipulagða misnotkun á ungum hvítum stúlkum af hálfu karlmanna af pakistönskum uppruna. Kvað þingkona í Yorkshire sjö mæður af svæðinu hafa sagt menn sitja um dætur þeirra, misnota þær kynferðislega og láta þær ganga á milli manna sem þeim var sagt að sofa hjá.

Klósettferðin sem getur bjargað þér frá því að brenna út í vinnunni

Að skrifa þessa pistla er stundum eins og að vera með harðlífi. Sama hvað ég rembist við að kreista fram hugmyndir koma þær ekki. Það verður því að teljast gráglettið, að fátt losar hraðar um ritstífluna en að þurfa að standa upp til að fara á klósettið.

Í sárum yfir brandara um hrossatyppi

Sagt er að hláturinn lengi lífið. Skotinn Michael Mcfeat mun hins vegar hugsa sig tvisvar um áður en hann segir brandara aftur.

Menn sem murka lífið úr öndunum á Tjörninni

Samkvæmt samfélagsmiðlanotanda í Garðabæ þorir fólk varla lengur út af heimilum sínum í London vegna yfirgangs glæpalýðs og innflytjenda. Ég leit af Twitter og út um gluggann heima hjá mér þar sem ég bý í London. Allt virtist með kyrrum kjörum. En hvað var þetta? Gat verið að þarna færi maður sem murkaði lífið úr svani og lagði hann sér svo til munns?

Drengurinn sem dó

Hinn 24. maí árið 1917 fæddist íslenskum foreldrum drengur. Á ljósmyndum blasir fegurð hans við; ómótstæðilegar bollukinnar; stór augu sem stara af varfærni eins og inn í óskrifaða framtíð; litlir fingur sem læsast um bangsa. Hefði barnið fæðst í dag deildu foreldrarnir eflaust myndunum á Facebook með blíðuhótum á borð við „gullmoli“ og uppskæru læk og heillaóskir.

Þess vegna ættir þú frekar að fara í partí en borða brokkolí

Klukkan var að ganga ellefu. Eins og metnaðarfullum sjálfstætt starfandi blaðamanni er lagið sat ég enn á náttfötunum í sófanum heima hjá mér og horfði á það besta sem sjónvarpsútsendingar um hábjartan dag hafa upp á að bjóða.

Ný skólína frá Nike: Air Inga – „just do it“

Ég ætlaði að byrja árið á jákvæðu nótunum. Staðreyndin er hins vegar sú að það borgar mér enginn laun fyrir að breiða út gleði. Eitt er það sem ég þoli verr við janúar en veðrið og Vísa-reikninginn. Ég hef skömm á öllum dálksentímetrum dagblaðanna sem fara undir völvu ársins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.