Fékk þrettán leikja bann fyrir hnefahöggið Sindri Sverrisson skrifar 29. apríl 2026 21:53 Þetta högg þýðir að Esteban Andrada missir af þrettán leikjum. Vísir/Samsett Nú er orðið ljóst hve lengi markvörðurinn Esteban Andrada verður í leikbanni eftir að hafa misst stjórn á sér og kýlt mótherja kaldan í leik í spænsku B-deildinni í fótbolta á sunnudaginn.
Andrada, sem er markvörður Real Zaragoza, hlaut í dag tólf leikja bann fyrir að kýla Jorge Pulido, fyrirliða Huesca, til viðbótar við eins leiks bannið sem hann hlaut sjálfkrafa vegna rauðs spjalds. Andrada hafði nefnilega þegar fengið að líta sitt annað gula spjald og þar með rautt þegar hann hljóp á eftir Pulido og kýldi hann í andlitið. Goleiro Esteban Andrada, do Zaragoza, cometeu uma agressão absurda no dérbi com o Huesca. Tem de pegar um gancho sério. pic.twitter.com/dHEaCH5Ktp— Leonardo Bertozzi (@lbertozzi) April 26, 2026 Eins og vænta mátti þá leiddi hnefahöggið til frekari átaka og voru Dani Jimenez, markvörður Huesca, og Dani Tasende liðsfélagi Andrada, einnig reknir af velli. Í rökstuðningi aganefndar spænska knattspyrnusambandsins segir að ofbeldisfull hegðun Andarada verðskuldi hámarksrefsingu, eða tólf leikja bann, og mega bæði leikmaðurinn og Zaragoza eiga von á fjársektum þar að auki. Andrada, sem er 35 ára Argentínumaður, hefur beðist afsökunar á framferði sínu. „Í sannleika sagt þá þykir mér þetta mjög miður. Þetta kemur ekki vel út fyrir félagið, stuðningsmennina og sérstaklega mig sjálfan sem atvinnumann. Þess vegna þykir mér þetta mjög leitt,“ sagði Andrada og bætti við að eina rauða spjaldið sem hann hefði áður fengið á ferlinum hefði hann fengið fyrir að handleika boltann utan vítateigs. Zaragoza tapaði leiknum 1-0 og er í næstneðsta sæti en fjögur neðstu liðin falla niður í C-deild. Huesca er einnig í fallsæti, stigi ofar en Zaragoza sem er þremur stigum frá næsta örugga sæti nú þegar fimm umferðir eru eftir.
Spænski boltinn Mest lesið Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Sjá meira