Viðskipti innlent

Búast við hærri vöxtum á ó­verð­tryggðum lánum

Samúel Karl Ólason skrifar
Seðlabankinn framkvæmir útlánakönnun þessa fjórum sinnum á ári.
Seðlabankinn framkvæmir útlánakönnun þessa fjórum sinnum á ári.

Forsvarsmenn íslenskra banka búast við því að vextir á óverðtryggðum íbúðalánum muni hækka frekar á næstu sex mánuðum. Er það vegna væntanlegrar hækkunar meginvaxta og hærri fjármögnunarkostnaðar. Vextir á verðtryggðum lánum búast þeir við að haldist óbreyttir.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri útlánakönnun Seðlabankans sem framkvæmd var á fyrstu tveimur vikum aprílmánaðar. Niðurstöðurnar voru birtar á vef Seðlabankans í gær.

Hækkun vaxta á óverðtryggðum lánum til heimila á síðustu þremur mánuðum er rakin til hækkunar meginvaxta Seðlabankans og að minna leyti til hærri fjármögnunarkostnaðar.

Hvað varðar verðtryggð útlán til heimila voru vextir og vaxtaálag óbreytt á síðustu þremur mánuðum, samkvæmt svörum bankanna. Áfram er búist við því að það muni haldast óbreytt næstu sex mánuði.

Seðlabankinn framkvæmir útlánakönnun þessa fjórum sinnum á ári en í henni eru forsvarsmenn viðskiptabankanna fjögurra, Arion, Íslandsbanka, Kviku og Landsbankans, spurðir út í mat þeirra á þróun framboðs og eftirspurnar eftir lánsfé, um breytingar á útlánareglum, útlánavöxtum og vaxtaálagi, svo eitthvað sé nefnt. Þá eru þeir spurðir um horfurnar næstu sex mánuði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×