Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 2. maí 2026 14:03 Halla Ingólfsdóttir er íbúi í Grímsey. vísir/aðsend Íbúi í Grímsey mótmælir harðlega fyrirhuguðum breytingum á siglingaráætlun en til stendur að fella niður einu ferðina sem farin er út í eyjuna á fimmtudögum. Öll forsenda fyrir byggð í Grímsey standi og falli með samgöngum til og frá eyjunni.
Akureyri.net greindi frá því fyrir helgi að fyrirhugað væri að breyta siglingaáætlun Sæfara og fella niður fimmtudagsferðir milli Grímseyjar og Dalvíkur yfir vetrartímann. Halla Ingólfsdóttir, formaður hverfisráðs Grímseyjar segir félagið mótmæla fyrirhuguðum breytingum og krefst þess að fimmtudagsferðin haldist óbreytt. „Við búum lengst úti í hafi og við getum ekkert búið hérna nema að samgöngurnar séu eins góðar og mögulegt er.“ Halla segir fimmtudagsferðina hafa skilað gríðarlegu til svæðisins. Hún skipti höfuðmáli fyrir ferðaþjónustuna auk þess sem hún sé lykilþáttur í að koma ferskum fisk frá eyjunni og á markað á landi. Góðar samgöngur forsenda fyrir byggð Fyrir tíu árum hafi ríkið samþykkt að tryggja fjórar ferðir á viku til að koma til móts við íbúa og þá fólksfækkun sem hafði verið á svæðinu. Hún segir að ef stjórnvöld ætli að skerða samgöngukosti frekar geti ríkið allt eins sagt íbúum Grímseyjar að koma sér í land. „Það bara segir sig sjálft að allar forsendur fyrir byggð í Grímsey eru samgöngur.“ Spyr hvort öllum sé sama? Hún biðlar til samgönguráðherra að tryggja samgöngur til og frá Grímsey. „En svo er það líka bara spurning: Er einhver vilji hjá þjóðinni og ríkinu að það sé byggð hérna? Eða er öllum sama þó Grímsey fari bara í eyði?“ Ef það sé vilji stjórnvalda að viðhalda byggð í Grímsey verði að tryggja samgöngur. Hugmyndir sumra um að eyjan verði einungis sumarhúsabyggð séu óraunhæfar. „Því um leið og síðasta manneskja fer héðan þá verður slökkt á rafmagninu, þá verður enginn hérna. Við komum ekkert hérna á sumrin. Það er rosalega mikill misskilningur. Og jú, auðvitað getur einhver átt hérna hús og gert sína eigin rafstöð og komið hingað á sínum bát við bestu aðstæður, en það er ekkert grín að fara yfir þetta sund stundum.“
Grímsey Samgöngur Akureyri Byggðamál Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira