Sagan með Val en KR á flugi Valur Páll Eiríksson skrifar 30. apríl 2026 19:32 Valsmenn unnu afgerandi sigur á Hlíðarenda í fyrra. Margur bíður spenntur eftir laugardagskvöldinu þegar erkifjendurnir Valur og KR eigast við í toppslag Bestu deildar karla í fótbolta á Hlíðarenda. Saga undanfarinna ára er með Val í liði en KR vann leik liðanna í bikarnum á dögunum.
Það má með sanni segja að KR-ingum hafi ekki gengið vel á Hlíðarenda undanfarin ár. Þeir töpuðu 6-1 fyrir Val þar í fyrra og raunar tapað öllum leikjum þar síðustu fimm ár. Fimm töp með markatöluna 3-18 fyrir Val. Klippa: Mikil spenna fyrir laugardeginum „Það er enginn KR-ingur glaður þegar liðið tapar fyrir Val. Það er bara þannig. Það er ömurleg tilfinning sama hvar það er og hvenær sem það er; hvort sem það er í Reykjavíkurmóti, bikarkeppni eða í Bestu deildinni. Auðvitað ætlum við að gera okkar allra besta til að breyta því á laugardaginn,“ segir Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR. Svarað gagnrýninni Valsmenn sættu gagnrýni í upphafi móts. Eftir silfur í deild og bikar í fyrra var liðinu spáð sjötta sæti deildarinnar, töpuðu fyrir KR sannfærandi í bikar og svo fyrir nýliðum Þórs í fyrsta leik. Þeir hafa hins vegar svarað þeim gagnrýnisröddum með þremur sigrum í röð og eru aðeins þremur stigum frá toppliði KR. „Maður er svo sem orðinn aðeins vanur þessu, verandi í Val. Það hefur aðeins loðað við okkur að það er gert mikið úr öllu sem gerist innan veggja Vals og á einhverjum tímapunkti hættir þetta að bíta svakalega og svo er í rauninni það eina sem maður getur gert að svara þessu inni á vellinum. Okkur hefur tekist það ágætlega hingað til,“ segir Hólmar Örn Eyjólfsson, fyrirliði Vals. Byrjað snemma út um allan bæ Það á að taka daginn snemma, bæði í KR-heimilinu sem og í Fjósinu við Hlíðarenda, og troðfylla stúkuna þegar leikurinn fer fram á laugardagskvöld. Fjósið opnar upp úr klukkan 14:00 og félagsheimili KR um klukkan 15:00 eftir árgangamót félagsins. Það er þá ekki á hverjum degi sem liðin tvö mætast, verandi bæði að berjast við toppinn. „Það er alltaf auka kitl að spila við Val, sérstaklega núna þar sem bæði lið eru búin að byrja vel. Ég býst ekki við öðru en að það verði full stúka, undir flóðljósunum, þetta er eini leikurinn á þessum tíma. Þetta er bara geðveikt,“ segir Aron Sigurðarson, fyrirliði KR. „Þetta býður upp á alvöru skemmtun og frábært að þetta hitti svona á laugardagskvöld að erkifjendur mætist. Þetta verður bara frábær skemmtun fyrir alla,“ segir Hermann Hreiðarsson, þjálfari Vals. Innslag úr Sportpakka kvöldsins má sjá í spilaranum.
Besta deild karla Valur KR Íslenski boltinn Mest lesið Uppgjör: ÍA – Víkingur R. 1-2 | Ævintýrasumar Óskars og Víkinga heldur áfram Íslenski boltinn Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Partey ekki hleypt inn í Kanada og missir af fyrsta leik Gana á HM Fótbolti Jökull rekinn frá Stjörnunni Íslenski boltinn Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Íslenski boltinn Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Fótbolti Almar ekki í kassanum Fótbolti Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Fleiri fréttir Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Aron Elís: „ Ég ætla ekki að fara jinxa neitt“ Breiðablik og Víkingur mætast í undanúrslitum Uppgjör: ÍA – Víkingur R. 1-2 | Ævintýrasumar Óskars og Víkinga heldur áfram Þróttarar með þriggja stiga forskot á toppnum Jökull rekinn frá Stjörnunni Blikarnir brunuðu í undanúrslit bikarsins Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Bestu-deildarpar á von á barni saman Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð Víkingar kynna miðamál fyrir stærsta leik sumarsins Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ Vill standa sig fyrir Ingvar vin sinn Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Vestri valtaði yfir Völsung Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Aron Einar heim í Þorpið? Sara Björk tekur einnig að sér afreksþjálfun hjá Haukum Höggin dynja á Þórsurum: Norðmaðurinn farinn heim Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Á völlinn eftir þrjú slit, fjögur ár og fimm aðgerðir: „Ólýsanlegt“ Sara Björk snýr heim í Hauka „Það vill enginn í hópnum sjá hann fara“ Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Ögmundur laus allra mála hjá Val Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Sjá meira