Mörg þúsund „glataðir ljósmyndarar“ sóttu um Freyja Þórisdóttir skrifar 2. maí 2026 13:14 Fjallabak er svæði á Íslandi sem hefur lengi verið vinsæll áfangastaður ljósmyndara enda mjög fallegt. Vísir/RAX Flugfélagið Icelandair hefur lokað fyrir umsóknir í leit sinni að „virkilega slæmum ljósmyndara“ en áhuginn á verkefninu var miklu meiri en upphaflega var áætlað. Verkefnið snýst um að sanna að jafnvel versti ljósmyndari geti tekið frábærar myndir af Íslandi. Icelandair hóf að auglýsa eftir „virkilega slæmum ljósmyndara“ fyrir um þremur vikum en verkefnið er hluti af alþjóðlegri herferð sem unnin er í samstarfi við auglýsingaskrifstofuna Hvíta húsið. „Okkur hafa borist 127.642 umsóknir! Það virðist vera að það séu mun fleiri lélegir ljósmyndarar þarna úti en við áttum von á,“ segir á vef flugfélagsins. Þeim glataða ljósmyndara sem er ráðinn í starfið er ætlað að sanna að það sé á færi allra að taka góðar myndir af Íslandi. Þarf að vera einstaklega lélegur ljósmyndari Ríflega hundrað tuttugu og sjö þúsund umsóknir bárust en kröfur voru meðal annars þær að hafa engan faglegan bakgrunn í ljósmyndun, verða oft fyrir vonbrigðum með eigin myndir og hafa engan áhuga á að læra ljósmyndun. Icelandair Af ummælum við færslur flugfélagsins að dæma eru þó nokkrir eiginmenn sem hafa verið sendir inn sem umsækjendur, sumir jafnvel óafvitandi. Ferilskráin mín? Eða er ferliskrá eiginmanns míns?Eiginmaður minn er ekkert smá hæfur í þessa stöðu.Hversu margar eiginkonur munu senda inn nöfn eiginmanna sinna? Einn verður valinn í verkið og mun sá fá rúmar sex milljónir íslenskra króna í sinn hlut, tíu daga ferð til Íslands og verða mögulega heimsfrægur fyrir myndirnar sínar. Ferðin fer fram í júní þessa árs og verður allur ferðakostnaður greiddur af flugfélaginu. Of gott til að vera satt Eitt af fyrri verkefnum herferðarinnar snerist um að fegurð Íslands væri svo ótrúleg að fólk teldi myndir sem deilt hafði verið af Icelandair gerðar af gervigreind. Því fann flugfélagið sig knúið til að birta yfirlýsingu þar sem það lofaði að hafa aldrei og muna aldrei nota gervigreindarknúnar myndir af Íslandi. „Við viljum bara láta þig vita að við hjá Icelandair notum ekki gervigreindarmyndir til að kynna Ísland. Hvers vegna? Vegna þess að við þurfum þess ekki. Ísland kann að líta út fyrir að vera óraunverulegt – en það er það ekki. Við lofum því.“ Einnig voru gerðar auglýsingar í samstarfi við Republik þar sem leikarinn Vilhelm Neto ferðast til landsins í von um að sýna fram á að Ísland sé „of gott til að vera satt“. Icelandair Auglýsinga- og markaðsmál Ljósmyndun Mest lesið Nicole er fyrir norðan Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Lífið Fleiri fréttir Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Sjá meira
Icelandair hóf að auglýsa eftir „virkilega slæmum ljósmyndara“ fyrir um þremur vikum en verkefnið er hluti af alþjóðlegri herferð sem unnin er í samstarfi við auglýsingaskrifstofuna Hvíta húsið. „Okkur hafa borist 127.642 umsóknir! Það virðist vera að það séu mun fleiri lélegir ljósmyndarar þarna úti en við áttum von á,“ segir á vef flugfélagsins. Þeim glataða ljósmyndara sem er ráðinn í starfið er ætlað að sanna að það sé á færi allra að taka góðar myndir af Íslandi. Þarf að vera einstaklega lélegur ljósmyndari Ríflega hundrað tuttugu og sjö þúsund umsóknir bárust en kröfur voru meðal annars þær að hafa engan faglegan bakgrunn í ljósmyndun, verða oft fyrir vonbrigðum með eigin myndir og hafa engan áhuga á að læra ljósmyndun. Icelandair Af ummælum við færslur flugfélagsins að dæma eru þó nokkrir eiginmenn sem hafa verið sendir inn sem umsækjendur, sumir jafnvel óafvitandi. Ferilskráin mín? Eða er ferliskrá eiginmanns míns?Eiginmaður minn er ekkert smá hæfur í þessa stöðu.Hversu margar eiginkonur munu senda inn nöfn eiginmanna sinna? Einn verður valinn í verkið og mun sá fá rúmar sex milljónir íslenskra króna í sinn hlut, tíu daga ferð til Íslands og verða mögulega heimsfrægur fyrir myndirnar sínar. Ferðin fer fram í júní þessa árs og verður allur ferðakostnaður greiddur af flugfélaginu. Of gott til að vera satt Eitt af fyrri verkefnum herferðarinnar snerist um að fegurð Íslands væri svo ótrúleg að fólk teldi myndir sem deilt hafði verið af Icelandair gerðar af gervigreind. Því fann flugfélagið sig knúið til að birta yfirlýsingu þar sem það lofaði að hafa aldrei og muna aldrei nota gervigreindarknúnar myndir af Íslandi. „Við viljum bara láta þig vita að við hjá Icelandair notum ekki gervigreindarmyndir til að kynna Ísland. Hvers vegna? Vegna þess að við þurfum þess ekki. Ísland kann að líta út fyrir að vera óraunverulegt – en það er það ekki. Við lofum því.“ Einnig voru gerðar auglýsingar í samstarfi við Republik þar sem leikarinn Vilhelm Neto ferðast til landsins í von um að sýna fram á að Ísland sé „of gott til að vera satt“.
Ferilskráin mín? Eða er ferliskrá eiginmanns míns?Eiginmaður minn er ekkert smá hæfur í þessa stöðu.Hversu margar eiginkonur munu senda inn nöfn eiginmanna sinna?
Icelandair Auglýsinga- og markaðsmál Ljósmyndun Mest lesið Nicole er fyrir norðan Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Lífið Fleiri fréttir Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Sjá meira