Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Freyja Þórisdóttir skrifar 2. maí 2026 14:50 Fjöldi ferðalanga sitja strand eftir að flugfélagið sendi frá sér tilkynninguna í morgun. Getty Bandaríska lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hefur hætt allri starfsemi og fellt öll skipulögð flug niður frá og með í dag, laugardaginn 2. maí. Í tilkynningu frá félaginu segir að hækkun olíuverðs og misheppnuð tilraun fyrirtækisins til að endurskipuleggja reksturinn hafi spilað inn í niðurlagninguna.
Lágfargjaldaferðalangar eru að öllum líkindum í óðaönn eftir að fréttirnar breiddust út en félagið, sem var á sínu 34. starfsári, bauð upp á flug innan Bandaríkjanna sem og til um fimmtíu alþjóðlegra áfangastaða, svo sem San Jósé í Kosta Ríka og Cartagena í Kólumbíu. „Það er með miklum trega sem Spirit Airlines hefur hafið niðurlagningu á alþjóðlegri starfsemi sinni, sem tekur gildi þegar í stað,“ birti flugfélagið á samfélagsmiðlum sínum í nótt. „Öllu flugi hefur verið aflýst og þjónustuver er ekki lengur tiltækt.“ Síðustu flug félagsins fóru í loftið í gærkvöldi, föstudaginn 1. maí, en í frétt sem birt var á The Washington Post segir að fjöldi annarra flugfélaga hafi þegar auglýst svokölluð „björgunarfargjöld“ eða sett þak á verð fyrir viðskiptavini hins gjaldþrota flugfélags. Sumir sitja uppi með ekki neitt Í tilkynningu Spirit segir að endurgreiðslur fyrir öll aflýst flug sem keypt voru á vefsvæði þess með kredit- eða debetkorti verði unnar sjálfkrafa. Flugfélagið sagði að viðskiptavinir sem bókuðu flug í gegnum ferðaskrifstofu ættu að hafa samband beint við þann þriðja aðila til að biðja um endurgreiðslu. Fyrir þá sem keyptu miða á annan hátt er staðan óljósari. Í tilkynningunni segir að bætur til viðskiptavina sem notuðu aðferðir eins og inneignarmiða, fluginneign eða vildarpunkta „verði ákveðnar síðar í gjaldþrotaskiptaferlinu“. Flugfélagið sagðist ekki geta endurgreitt farþegum „fyrir tilfallandi ferðakostnað sem tengist aflýstum ferðum“. Sömuleiðis er ekki lengur hægt að innleysa punkta né færa þá yfir til annars flugfélags eða vildarkerfis.
Tímamót Bandaríkin Fréttir af flugi Mest lesið Bensínverð hefur lækkað Viðskipti innlent Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Atvinnulíf Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Viðskipti erlent Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Viðskipti erlent Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Viðskipti innlent Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Viðskipti innlent Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Viðskipti innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Viðskipti erlent Húsnæði Kjötborgar til sölu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent