Sjáðu öll mörkin úr enska boltanum: Gyökeres og Saka í banastuði fyrir Skytturnar Ágúst Orri Arnarson skrifar 3. maí 2026 08:02 Viktor Gyökeres og Bukayo Saka drógu vagninn. Stuart MacFarlane/Arsenal FC via Getty Images Fjórir leikir fóru fram í ensku úrvalsdeildinni í gær og mörkin úr þeim má sjá hér fyrir neðan.
Arsenal - Fulham 3-0 Skytturnar eru með sex stiga forystu á toppi ensku úrvalsdeildarinnar eftir afskaplega öruggan þriggja marka sigur gegn Fulham. Viktor Gyökeres skoraði tvö mörk og lagði eitt mark upp. Bukayo Saka var líka í banastuði og bæði skoraði og lagði upp mark. Leando Trossard er þá einn ótalinn en hann átti líka stoðsendingu. Klippa: Arsenal - Fulham 3-0 Brentford - West Ham 3-0 Brentford vann langþráðan sigur eftir dræmt gengi og komst í Evrópusæti en West Ham gæti farið í fallsæti ef önnur úrslit falla ekki með þeim í dag. Gríski varnarmaðurinn Kostas Mavropanos skoraði sjálfsmark og Igor Thiago skoraði sitt 22. mark í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu. Daninn Mikkel Damsgaard skoraði svo þriðja markið. Klippa: Brentford - West Ham 3-0 Newcastle - Brighton 3-1 Newcastle batt enda á fjögurra leikja taphrinu þegar liðið sótti sigur suður með sjó. Daninn William Osula og varnarmaðurinn Dan Burn skoruðu mörk Newcastle áður en miðjumaðurinn ungi Jack Hinshelwood minnkaði muninn fyrir suðurstrendinga. Harvey Barnes gulltryggði sigurinn í lok leiks. Klippa: Newcastle - Brighton 3-1 Sunderland - Wolves 1-1 Nordi Mukiele kom Sunderland snemma yfir en Dan Ballard fékk að líta rautt spjald þegar aðeins 24 mínútur voru liðnar á leikinn fyrir hártog. Santiago Bueno jafnaði fyrir Wolves snemma í síðari hálfleik og þar við sat. Klippa: Sunderland - Wolves 1-1
Enski boltinn Arsenal FC Fulham FC Brentford FC Newcastle United Brighton & Hove Albion Sunderland AFC Wolverhampton Wanderers Mest lesið HM-leikmaður í glannaakstri með kókaín í blóðinu Fótbolti Litli bróðir þekktustu týndu stelpu heims stefnir á Ólympíuleika Sport Klopp kynntur sem nýr landsliðsþjálfari Þýskalands Fótbolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Myndband með afa heimsmeistarans bræddi hjörtu Fótbolti Lebron fer til Fíladelfíu Körfubolti Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Enski boltinn Hættir með landsliðinu Fótbolti Völler fer og Arsenal-hetja starfar með Klopp Fótbolti 42 ára aldursmunur á keppendum í 1500 metra hlaupi kvenna Sport Fleiri fréttir United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United Sjá meira