„Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Eiður Þór Árnason skrifar 4. maí 2026 20:21 Halla Tómasdóttir forseti og Leó 14. páfi eða His Holiness eins og hann var ávarpaður. VATICAN MEDIA Umdeildur málflutningur kanslara kaþólsku kirkjunnar á Íslandi um samkynhneigða var ekki ræddur á fundi forseta lýðveldisins með Leó fjórtánda páfa í dag. Forsetinn segist ávallt tala fyrir jafnréttisgildum Íslendinga en áherslan í dag hafi frekar verið á stöðu heimsmálanna. Ljóst sé hvað nýi páfinn verði kallaður í samfélagsmiðlafærslum.
Halla Tómasdóttir er í opinberri heimsókn á Ítalíu ásamt íslenskri sendinefnd og hitti bæði páfa og Sergio Mattarella, forseta landsins, í dag. „Það má segja að rauði þráðurinn á báðum fundum hafi verið staðan í heiminum, hvernig átök eru að vaxa og hvernig fólk í forystu getur reynt að mæta þessum tímum með meira samtali, meiri mennsku og meiri áherslu á frið,“ sagði hún í samtali við fréttastofu eftir að forsetaritara tókst að finna glufu í þéttri dagskránni. „Ég fann fyrir bæði mikilli góðmennsku og visku og vilja til þess að reyna að tala fyrir samtali, umhyggju, virðingu og friði. Það er eitthvað sem ég held að veiti ekki af að setja á dagskrá í heimi þar sem átökin virðast frekar vera að magnast og samtalið stundum að brotna niður og þess vegna var það ákaflega verðmætt að fá að ræða við þessa tvo menn.“ Ræddu ekki ummæli kanslarans Kanslari kaþólsku kirkjunnar á Íslandi komst í fréttir í mars þegar hann áréttaði afstöðu kirkjunnar í málefnum samkynhneigðra og sagði það stefnu Jesú Krists að samkynhneigt fólk þyrfti að breytast. „Samkynhneigð sem tilhneiging, það geta margir fundið það hjá sér og er ekki endilega vandamál út af fyrir sig. Aftur á móti þegar maður stundar kynlíf með fólki af sama kyni, þá verður þetta að vandamáli,“ sagði Jakob Rolland í samtali við fréttastofu þann 3. mars. Lýstu fjölmargir yfir óánægju sinni með þennan málflutning. Halla segir að ummæli kanslarans hafi ekki verið til umræðu á fundi hennar með páfa í dag. „Ekki nákvæmlega það samtal en alltaf á fundum hvar sem ég er tala ég fyrir áherslum okkar Íslendinga á jafnrétti, á að allir fái tækifæri til að njóta virðingar og vals í sínu lífi og frelsis. Þannig að það var alveg skýrt. En ég myndi segja að samtalið okkar snerist meira í dag, og það var tilgangurinn, um svona stærri mynd í heiminum og þá stöðu, þá þróun og hvernig við getum byggt brýr á milli forystufólks á ólíkum sviðum samfélagsins til að mæta þeim stóru áskorunum sem vissulega eru að valda okkur öllum, held ég, sem þjónum í svona hlutverkum áhyggjum.“ „Það er gaman að finna hvað þessi páfi er vitur, mannlegur og tilbúinn til að tala í takt við mjög skýran áttavita sem allavega að mínu mati okkur skortir í heiminum í dag. Ég ber mikla virðingu fyrir því hugrekki sem hann hefur sýnt í því.“ Svo þið rædduð ekki þessi orð kanslarans en þú segir að þú hafir lagt áherslu á jafnréttismál og þar með talið málefni samkynhneigðra í ykkar samtali? „Alltaf þegar ég hitti aðila á erlendri grundu tala ég fyrir áherslum okkar Íslendinga og auðvitað erum við yfirleitt stolt af því að segja frá því að við erum ákaflega mikil jafnréttisþjóð og höfum staðið framarlega í þeim málum, leggjum mikla áherslu á mannréttindi og eigum auðvitað sæti núna í Mannréttindaráði [Sameinuðu þjóðanna]. Þannig að þetta eru áherslur sem ég tala alltaf fyrir og þar með talið réttindum hinsegin fólks og annarra. Bara að allir fái tækifæri til þess að njóta virðingar og frelsis. Ég myndi segja að grunngildismatið bæði hérna á Ítalíu hjá forsetanum og einnig hjá páfanum, að við eigum miklu meira sameiginlegt heldur en það sem okkur greinir á og áherslurnar voru á þeim málum þó að ég taki alltaf fram hver okkar afstaða er gagnvart þessu.“ Bæði með áhyggjur af gervigreind Halla átti upphaflega einungis að fá fimmtán mínútur með páfa en þau enduðu á því að eiga samtal í um klukkustund. „Þannig að það má segja að við höfum haft um nóg að ræða. Mér fannst líka mjög athyglisvert að páfinn lagði mikla áherslu, eins og ég hef verið að gera, á unga fólkið og bara hvernig við getum hjálpað til að þau öðlist tiltrú á framtíðina og á okkur sem erum í leiðtogastörfum og hvernig þau geti verið með virkari hætti að taka þátt í að móta betri leið áfram heldur en blasir við um þessar mundir.“ Þá hafi páfinn talað mikið um þróun gervigreindar og lýst yfir vissum áhyggjum. Á sama tíma og ýmis tækifæri fylgi tækninni sé líka hætta á því að hún dragi úr trausti, ýti undir upplýsingaóreiðu og auki vanlíðan fólks samhliða mikilli skjá- og samfélagsmiðlanotkun. Þau séu sammála um að samfélög þurfi að passa sig á áskorununum á sama tíma og þau notfæri sér tækifærin sem fylgi tækninni. „Það var gaman að hitta páfa sem talar um tækni og unga fólkið og frið.“ Ekki nefndur á nafn í dag Það varð fréttaefni þegar Halla minntist „Pope Francis“ í samfélagsmiðlafærslu við fráfall páfans fyrir rúmu ári. Nú eru gárungarnir eflaust að velta fyrir sér hvort það liggi fyrir hvernig þú munir titla Leó í framtíðar Facebook-færslu ef af því verður. Hér hlær frú forseti og rifjar upp að hún hafi áður útskýrt að þetta hafi verið mislukkuð tilraun til að merkja opinberan samfélagsmiðlareikning Frans 13. páfa sem vissulega gengur þar undir nafninu Pope Francis. Færslunni var síðar breytt og í stað þess talað um Frans páfa líkt og hefð er fyrir í íslensku máli. „Ætli ég sé ekki eini forsetinn í heimi sem sér um eigin samfélagsmiðla og mér tókst nú ekki betur upp en að att-merkið datt út,“ segir Halla og vísar til táknsins sem er í þessu samhengi notað til að tengja samfélagsmiðlafærslur við aðra notendur. „En hann heitir bara Leó páfi held ég.“ Halla bætir við að hann hafi vissulega verið ávarpaður á annan hátt í dag. „Ég kallaði hann auðvitað, eins og þeir nota hérna og ávarpa, Your Holiness eða þinn heilagleiki, held ég að það sé á íslensku. Og notaði ekki nafnið hans í okkar samtali.“ Illt auga frá forsetaritara Þegar hér er komið við sögu er blaðamaður upplýstur um að forsetinn sé að verða sein í mat og þurfi fljótlega að binda enda á þetta samtal. Fram undan sé vinnukvöldverður með sendiherra Íslands í Róm og hans fólki. Á morgun stendur svo til að heimsækja Menningarstofnun Norðurlandanna í Róm og Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna. „Sem er í rauninni stærsta mannúðarverkefni í heimi þar sem verið er að vinna að því að koma mat til þeirra sem hann skortir. Í þeirri ólgu sem nú ríkir í heiminum: verðbólgu, orkuskorti, áburðarskorti og annað. Það er þegar búið að minnka fjárframlög til þess málaflokks og enn frekar mun það gerast mögulega í þessu ástandi,“ segir Halla. Hún sé stolt af því að Ísland hafi til að mynda styrkt skólamáltíðir í Afríku í gegnum stofnunina. Ástandið á suðurhveli jarðar hafi verið páfa ofarlega í huga í samtali þeirra í dag. „Þar eru líka vaxandi átök, til dæmis í Súdan sem stundum gleymast í samtali okkar um önnur stríð og átök sem er því miður orðið of mikið um,“ bætir Halla við rétt áður en hún upplýsir að forsetaritari sé farinn að horfa á hana með illu auga. Sendiherrann bíði. Fréttin hefur verið uppfærð.
Leó fjórtándi páfi Forseti Íslands Ítalía Jafnréttismál Trúmál Hinsegin Tengdar fréttir „Ekki Alþingi sem skipar mér hvað ég á að segja“ Kanslari kaþólsku kirkjunnar segir að lög guðs gildi þegar þau stangist á við landslög og að engar skipulagðar bælingarmeðferðir fyrir samkynhneigða séu stundaðar innan kaþólsku kirkjunnar hér á landi. Hann segir lög sem banna fólki að breyta um líferni ekki forsvaranleg. 3. mars 2026 19:09 Séra Jakob segir það vandamál að fólk stundi kynlíf með öðrum af sama kyni Kanslari við kaþólsku kirkjuna á Íslandi segir að það sé ekki vandamál í sjálfu sér að vera samkynhneigður en það verði hins vegar að vandamáli þegar fólk sængar hjá öðrum af sama kyni. Utanríkisráðherra Íslands, sem er kaþólskrar trúar, harmar þessi viðhorf en við ræðum við formann Samtakanna 78 í beinni útsendingu. 3. mars 2026 18:14 Halla Tómasdóttir minnist „Pope Francis“ Halla Tómasdóttir forseti deilir samúðarkveðjum vegna fráfalls Frans páfa. Hún vísar til hans sem „Pope Francis“ á ensku í færslunni. 21. apríl 2025 13:37 Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Innlent Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Innlent Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Innlent Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Innlent Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Fleiri fréttir Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Kjörbúðin lokar og ein verslun eftir í bænum Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Landskjörstjórn fellst á tillögur um nýtt orðalag Ekki áhyggjuefni að skipið sé á leið til Íslands „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sjá meira
„Ekki Alþingi sem skipar mér hvað ég á að segja“ Kanslari kaþólsku kirkjunnar segir að lög guðs gildi þegar þau stangist á við landslög og að engar skipulagðar bælingarmeðferðir fyrir samkynhneigða séu stundaðar innan kaþólsku kirkjunnar hér á landi. Hann segir lög sem banna fólki að breyta um líferni ekki forsvaranleg. 3. mars 2026 19:09
Séra Jakob segir það vandamál að fólk stundi kynlíf með öðrum af sama kyni Kanslari við kaþólsku kirkjuna á Íslandi segir að það sé ekki vandamál í sjálfu sér að vera samkynhneigður en það verði hins vegar að vandamáli þegar fólk sængar hjá öðrum af sama kyni. Utanríkisráðherra Íslands, sem er kaþólskrar trúar, harmar þessi viðhorf en við ræðum við formann Samtakanna 78 í beinni útsendingu. 3. mars 2026 18:14
Halla Tómasdóttir minnist „Pope Francis“ Halla Tómasdóttir forseti deilir samúðarkveðjum vegna fráfalls Frans páfa. Hún vísar til hans sem „Pope Francis“ á ensku í færslunni. 21. apríl 2025 13:37