Segja að Alfreð og félagar ættu að ráða Solskjær Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 5. maí 2026 12:00 Ole Gunnar Solskjær gæti snúið aftur í norska boltann. getty/Catherine Ivill Rosenborg hefur sagt Alfred Johansson upp störfum sem þjálfara liðsins. Fyrrverandi leikmaður þess segir að Alfreð Finnbogason og hæstráðendur Rosenborg ættu að horfa til Ole Gunnars Solskjær.
Alfreð er yfirmaður knattspyrnumála hjá Rosenborg sem hefur aðeins unnið einn af fyrstu sjö leikjum sínum í norsku úrvalsdeildinni. Johansson stýrði Rosenborg í rúmlega tvö og hálft ár. Alexander Tettey, fyrrverandi leikmaður liðsins, mun stýra Rosenborg á næstunni, þar til nýr þjálfari finnst. Í viðtali við Verdens Gang var Steffen Iversen, fyrrverandi leikmaður Rosenborg, beðinn um að nefna kandítata í þjálfarastarfið hjá félaginu. „Það eru nokkrir. Eirik Horneland er laus en hann vill kannski reyna meira fyrir sér erlendis. Ole Gunnar Solskjær er jú laus. Þetta eru tveir góðir kostir,“ sagði Iversen sem telur að Solskjær gæti alveg tekið við Rosenborg þótt hann hafi þjálfað og spilað fyrir Molde áður fyrr. Solskjær hefur verið án starfs síðan hann var látinn fara frá Besiktas í Tyrklandi í lok ágúst í fyrra. Hann var orðaður við þjálfarastarfið hjá Manchester United eftir að Ruben Amorim var látinn fara en Michael Carrick var ráðinn. Solskjær stýrði Molde á árunum 2010-14 og 2015-18. Undir hans stjórn varð Molde norskur meistari í tvígang og vann norsku bikarkeppnina einu sinni. Alfreð hefur starfað hjá Rosenborg frá því í byrjun ársins. Hann samdi við félagið til ársins 2030. Rosenborg er sigursælasta félag Noregs en liðið hefur 26 sinnum orðið meistari. Það hefur hins vegar ekki unnið norsku úrvalsdeildina síðan 2018.
Norski boltinn Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn Fleiri fréttir Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Bikar-Ísak skoraði í stórsigri „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Sjá meira