Mögnuð tilþrif Stefáns á báðum endum og efsta deild markmiðið Sindri Sverrisson skrifar 5. maí 2026 16:30 Stefán Teitur Þórðarson fagnar marki sínu gegn Münster um helgina. Getty/Swen Pförtner Landsliðsmaðurinn Stefán Teitur Þórðarson átti magnaða innkomu hjá Hannover í þýsku B-deildinni í fótbolta um síðustu helgi og er staðráðinn í að komast með liðinu upp í efstu deild.
Stefán fylgdist með af varamannabekknum í fyrri hálfleik þegar Hannover mætti Münster á heimavelli og var staðan 2-2 í hálfleik. Honum var svo skipt inn á í upphafi seinni hálfleiks og á fimm mínútna kafla, seint í leiknum, náði Skagamaðurinn að bjarga meistaralega á marklínu og skora svo sjálfur glæsimark á hinum enda vallarins, eins og sjá má hér að neðan. View this post on Instagram A post shared by Hannover 96 (@hannover96) Þessi tilþrif Stefáns dugðu þó ekki alveg því Münster náði inn jöfnunarmarki á þriðju mínútu uppbótartíma og lokatölur því 3-3. Schalke hefur þegar tryggt sér sigur í deildinni en Elversberg er í 2. sæti með 59 stig og Hannover og Paderborn eru með 58 stig hvort. Tvö efstu liðin fara beint upp í efstu deild en þriðja liðið fer í umspil við þriðja neðsta liðið úr efstu deild. Hannover spilar næst á útivelli gegn Bochum og á svo heimaleik við Nürnberg í lokaumferðinni, 17. maí, og Stefán er staðráðinn í að ná í sex stig og vona að það dugi til að komast beint upp í efstu deild. „Það eru enn tveir leikir eftir og við gefum allt okkar í þá. Við getum ekki haft áhrif á aðra leiki og verðum að einbeita okkur að okkur sjálfum. Ég ætlast til þess að við setjum hundrað prósent í þessa leiki,“ sagði Stefán við heimasíðu Hannover. „Við förum í þessa leiki með kassann úti, stoltir og fullir af orku. Við verðum að leggja allt í sölurnar í þessum tveimur leikjum og sjáum svo hverju það skilar okkur,“ sagði Stefán.
Þýski boltinn Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool - Chelsea | Stórleikur í deildarbikarnum Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Liverpool - Chelsea | Stórleikur í deildarbikarnum Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Bikar-Ísak skoraði í stórsigri „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Sjá meira