Sjálfbær þróun kaupmannsins á horninu BYKO 8. maí 2026 09:28 Samstarf Pikkoló og BYKO á rætur að rekja til ársins 2019 þegar hugmyndin að Pikkoló kviknaði. Nú er unnið að uppbyggingu þriggja nýrra stöðva í Grafarvogi, Garðabæ og á Granda. Sigurður Brynjar Pálsson er forstjóri BYKO og Ragna Guðmundsdóttir er stofnandi og framkvæmdastjóri Pikkoló. Pikkoló og BYKO taka næsta skref í samstarfi sínu, en Pikkoló rekur kældar afhendingarstöðvar á höfuðborgarsvæðinu þar sem fólk getur nálgast ferskar mat- og dagvörur í nærumhverfi sínu. „
Hjá BYKO trúum við því að framtíð smásölu felist m.a. í því að byggja upp þjónustu sem kemur til móts við fólk í nærumhverfi þess. Pikkoló býður lausn sem sameinar tækni, sjálfbærni og þægindi. Pikkoló hófst sem lítið verkefni uppfullt af ástríðu sem hefur öðlast sjálfstætt líf með bjarta framtíð. Það vekur hjá okkur jákvæða tilfinningu,“ segir Sigurður Brynjar Pálsson, forstjóri BYKO. Samstarf Pikkoló og BYKO á rætur sínar að rekja til ársins 2019 þegar hugmyndin að Pikkoló kviknaði. Frá fyrsta degi hafði BYKO mikla trú á verkefninu, á tíma þegar netverslun með matvöru var enn á byrjunarreit. Árið 2020 var stigið mikilvægt skref þegar Pikkoló fékk að umbreyta litlu timburhúsi á lóð BYKO í fyrstu kældu afhendingarstöð landsins, frumgerð sem lagði grunninn að snjalldreifikerfi Pikkoló. Fyrstu afhendingar, meðal annars fyrir Eldum rétt, fengu afar jákvæðar viðtökur og staðfestu þörfina fyrir nýja nálgun í dreifingu matvöru sem keypt er á netinu. Í kjölfarið tryggði Pikkoló sér styrki úr Miðborgarsjóði, Hönnunarsjóði og Tækniþróunarsjóði, sem gerðu fyrirtækinu kleift að þróa áfram bæði tækni og hönnun á kældum afhendingarstöðvum Pikkoló. BYKO hefur gegnt lykilhlutverki í uppbyggingu Pikkoló frá upphafi og hefur séð fyrirtækinu fyrir umhverfisvænu hráefni í afhendingarstöðvarnar, sem eru hannaðar með sjálfbærni, fegurð og hagkvæmni að leiðarljósi. Við hönnun afhendingarstöðva Pikkoló hefur verið lögð rík áhersla á gæði og útlit, þannig að stöðvarnar falli vel inn í nærumhverfi fólks. Markmiðið er að þær verði jákvæð viðbót við hverfi, ekki aðeins tæknilegur innviður heldur hluti af daglegu lífi í anda hins vinalega kaupmanns á horninu sem fólk vill hafa nálægt sér. „BYKO er lykilsamstarfsaðili okkar í þessu verkefni og við værum líklega ekki á þeim stað sem við erum á í dag með snjalldreifikerfi Pikkoló ef við hefðum ekki fengið þennan ómetanlega stuðning frá BYKO. ‘Gerum þetta saman’ er ekki bara slagorð – BYKO hefur sannarlega staðið við það í verki,“ segir Ragna Guðmundsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Pikkoló. Í dag rekur Pikkoló fimm kældar afhendingarstöðvar á höfuðborgarsvæðinu og tengir snjalldreifikerfi sitt við leiðandi verslanir og þjónustur, þar á meðal Eldum rétt og Krónuna. Nýlega opnaði Pikkoló jafnframt sitt eigið markaðstorg þar sem viðskiptavinir geta nálgast fjölbreytt og spennandi úrval matvara, allt frá íslenskum grænmetiskössum til nýstárlegra vara á borð við hágæða japönsk jarðaber ræktuð á Íslandi. Lausn Pikkoló felur í sér byltingu í dreifingu: allt að 80 pantanir er hægt að afhenda í hverja Pikkoló stöð í stað þess að aka á tugi heimila. Afhendingar fara fram áður en umferð nær hámarki og viðskiptavinir sækja pantanir þegar þeim hentar í fullkomnum takti við sína daglega rútínu. Þessi nálgun dregur verulega úr umferð og kolefnisspori og styður við metnaðarfull loftslagsmarkmið, þar sem samgöngur eru einn stærsti losunarþáttur í borgum. Með hraðri aukningu matvöruverslunar á netinu er ljóst að þörfin fyrir skilvirkar og sjálfbærar dreifilausnir mun aðeins aukast á komandi árum. Framtíðarsýn Pikkoló er að byggja upp 30 afhendingarstöðvar á Íslandi fyrir árið 2030 og tryggja að allir hafi aðgengi að ferskri og fjölbreyttri matvöru í sínu nærumhverfi. Nú er unnið að uppbyggingu þriggja nýrra stöðva í Grafarvogi, Garðabæ og á Granda, sem verða framleiddar í Lettlandi í nánu samstarfi við BYKO. Með því er stigið stórt skref í að skala lausnina hratt og á skilvirkan hátt, bæði á Íslandi og á alþjóðavísu. Pikkoló sér ekki aðeins fyrir sér að vaxa hér á landi heldur horfir einnig út fyrir landsteinana með lausn sem er einstök á heimsvísu og hefur þegar vakið athygli fyrir nýsköpun í sjálfbærri dreifingu ferskvara sem versluð er á netinu. Með snjalldreifikerfi Pikkoló og stuðningi BYKO er verið að byggja upp umhverfisvæna nútíma innviði sem draga ekki aðeins úr umferð heldur bæta lífsgæði fólks með aukinni þjónustu í nærumhverfi.
Sjálfbærni Umhverfismál Verslun Mest lesið Lítið kjöt á beinum rándýrsins Gagnrýni „Enginn nema ég þekkir þessa Ragnhildi“ Áskorun Fannst látinn á Mallorca eftir höfuðáverka Lífið Inga Tinna keypti 342 fermetra höll Lífið Fögnuðu sjötíu árum og heiðruðu félaga Lífið Ástarsorgin átakanleg en gjöful Tónlist Stefnir Cameron fyrir að stela andliti hennar Bíó og sjónvarp Tapaði ellefu milljónum Lífið „Mig langaði bara að deyja alla daga“ Lífið Leiðir skilja ekki hjá Charlize Theron og Balta Lífið Fleiri fréttir Sjálfbær þróun kaupmannsins á horninu Bílahátíð ársins á Kletthálsi: Ofurtilboð í þrjá daga Þetta hefur gefið mér nýtt líf Húð- og feldumhirðuvörur sem draga úr ofnæmisvöldum frá hundum og köttum Hárlos hjá körlum: Hvað veldur og hvernig er hægt að grípa inn í? Nýr rafbíll BMW afhjúpaður í Hörpu Tannhjálp sinnir nauðsynlegri neyðarþjónustu tannlækna Nú er rétti tíminn til að huga að útisvæðinu „Sumarið byrjar hjá okkur“ Eva Laufey segir Hagkaup tilbúið í björtustu dagana Gerðu pallinn og svalirnar að uppáhaldsstað sumarsins! Hvernig tannlæknar leysa algeng útlitsvandamál Kaldir pottar eru orðnir hluti af daglegri rútínu margra landsmanna Nespresso 40 ára: Afmælishátíð með vinningum að verðmæti milljón króna Golfvöllurinn í Eyjum tilnefndur sem sá besti í Evrópu Opnir fræðslufundir fyrir almenning um lífeyrismál Situr þú eins og rækja? Góð líkamsstaða byrjar á réttum stól Skóspark og Krakkadagar hjá Icewear: Gengið inn í vorið E.T. sýnd við lifandi undirleik Sinfó í Hörpu Infraklefar og sánur eru heilsutrendið sem allir eru að tala um Hugarafl er staður þar sem karlmenn fella niður grímuna Tryggðu þér sæti í sólinni áður en sumarið fyllist Pungrakvélin hefur slegið í gegn hjá Chad Grooming Hinn goðsagnakenndi óperusöngvari Sir Bryn Terfel kemur til Íslands Íslenskt heiðalamb frá Kjarnafæði í nýjum páskaumbúðum Galdurinn á bak við hinn fullkomna ljóma Sjá meira