Innlent

Loka­tölur á Sel­tjarnar­nesi: Sjálf­stæðis­menn halda velli

Ritstjórn skrifar
Ný bæjarstjórn Seltjarnarness.
Ný bæjarstjórn Seltjarnarness. vísir/sara

Sjálfstæðisflokkurinn heldur hreinum meirihluta sínum og Samfylking, Viðreisn og óháðir tapa manni á Seltjarnarnesi. Miðflokkurinn fær einn fulltrúa.

Á kjörskrá á Seltjarnarnesi eru 3.541 manns. Sjö bæjarfulltrúar eiga sæti í bæjarstjórn. Talin atkvæði voru 2743.

Í sveitarstjórnarkosningunum 2022 hélt Sjálfstæðisflokkurinn hreinum meirihluta sínum og hefur gegnt Þór Sigurgeirsson gegnt embætti bæjarstjóra á kjörtímabilinu.

Atkvæðin féllu þannig:

  • D listi - Sjálfstæðisflokkurinn: 51,9% með 4 fulltrúa
  • M listi - Miðflokkurinn: 14,5% með 1 fulltrúa
  • S listi - Samfylking, Viðreisn og óháðir: 33,6% með 2 fulltrúa

Eftirfarandi ná kjöri:

  • Þór Sigurgeirsson (D)
  • Elísabet Ingunn Einarsdóttir (D)
  • Magnús Benediktsson (D)
  • Björn Jóhannsson (D)
  • Kristinn Ólafsson (S)
  • Sigurþóra Bergsdóttir (S)
  • Skafti Harðarson (M)
Á kjörskrá á Seltjarnarnesi eru 3.541 manns. Vísir


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×