Innlent

Loka­tölur í Vest­manna­eyjum: Sjálf­stæðis­menn með hreinan meiri­hluta

Ritstjórn skrifar
Ný bæjarstjórn Vestmannaeyja.
Ný bæjarstjórn Vestmannaeyja. vísir/sara

Sjálfstæðisflokkurinn hlaut fimm kjörna fulltrúa og þar með hreinan meirihluta í Vestmannaeyjum. Miðflokkurinn fékk tvo menn kjörna og Eyjalistinn hélt sínum tveimur.

Á kjörskrá í Vestmannaeyjum eru 3.541 manns. Níu bæjarfulltrúar eiga sæti í bæjarstjórn.

Í sveitarstjórnarkosningunum 2022 héldu Eyjalistinn og Fyrir Heimaey meirihluta sínum og hélt Íris Róbertsdóttir áfram störfum sem bæjarstjóri. 

Íris er nú bæjarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins, en Fyrir Heimaey býður ekki fram í kosningunum nú.

Atkvæðin dreifðust þannig:

  • D listi - Sjálfstæðisflokkurinn: 55,7% með 5 fulltrúa
  • E listi - Eyjalistinn: 19,1% með 2 fulltrúa
  • M listi - Miðflokkurinn: 25,2% með 2 fulltrúa

Eftirfarandi náðu kjöri:

  • Eyþór Harðarson (D)
  • Trausti Hjaltason (D)
  • Aníta Jóhannsdóttir (D)
  • Óskar Jósúason (D)
  • Hildur Sólveig Sigurðardóttir (D)
  • Jón Þór Guðnason (M)
  • Sæunn Magnúsdóttir (M)
  • Arndís María Kjartansdóttir (E)
  • Anton Örn Björnsson (E)
Á kjörskrá í Vestmannaeyjum eru 3.541 manns.Vísir


Tengdar fréttir

Lokatölur úr Fjalla­byggð: Meirihlutinn heldur velli

Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig einum fulltrúa frá síðustu kosningum og er með þrjá. Nýr listi, Listi fyrir heildina fær tvo. Listi Jafnaðarmannafélags Fjallabyggðar fær einnig tvo. Jafnaðarmannafélagið og Sjálfstæðisflokkur mynda í dag meirihluta og heldur hann velli samkvæmt þessu.

Lokatölur í Suður­nesja­bæ: Samfylkingin stærst

Listi Samfylkingar og óháðra fær þrjá bæjarfulltrúa í Suðurnesjabæ og listi Framsókn tvo samkvæmt lokatölum í sveitarstjórnarkosningum. Sjálfstæðisflokkurinn og Miðflokkur fá tvo fulltrúa hvor.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×