Hetjan Einar sleginn í punginn: „Svona á ekki heima á handboltavelli“ Sindri Sverrisson skrifar 7. maí 2026 07:33 Einar Bragi Aðalsteinsson fékk högg í punginn og lá eftir á vellinum í stutta stund. Hann svaraði svo fyrir sig með því að reynast hetja Kristianstad í framlengingu. Skjáskot/Instagram Einar Bragi Aðalsteinsson vildi sem minnst tjá sig um augljósa punghöggið sem hann fékk í dramatískum slag í undanúrslitaslag í sænska handboltanum í gær. Þjálfari hans talaði hreint út um atvikið.
Einar Bragi var hetja Kristianstad sem vann Alingsås í framlengdum leik, 36-33, og tryggði sér þar með oddaleik á heimavelli í undanúrslitum sænsku úrvalsdeildarinnar. Mikill hiti er kominn í einvígið en ljóst er að Samuel Lindberg, leikmaður Alingsås, gekk of langt þegar hann sló Einar Braga í punginn eins og sjá má hér að neðan. View this post on Instagram A post shared by @avkast_handbollspodden Lindberg mætti í viðtal í hálfleik og kenndi Einari Braga um með því að hafa verið „uppi í andlitinu“ á honum eftir að Lindberg hafði klúðrað vítakasti: „Ég hugsaði með mér: Hættu,“ sagði Lindberg sem slapp við rautt spjald þar sem að dómarar leiksins sáu ekki atvikið. Sjá allir hvað gerðist Kristianstadsbladet spurði Einar Braga út í atvikið eftir leik en hann var fámáll um það. „Í dag fáið þið ekkert frá mér um þetta. Ég kýs að segja ekki neitt,“ sagði Einar Bragi. Aðspurður hvort það væri vegna þess að enn væri einn leikur eftir í einvíginu svaraði hann: „Ég skal segja eitt í viðbót: Það sjá allir á myndbandinu hvað gerðist,“ sagði Einar Bragi. Þjálfarinn Anders Hallberg útilokaði ekki að atvikið yrði kært og að Lindberg yrði í leikbanni á föstudaginn. „Þetta er ekki í fyrsta sinn sem að þeir verða uppvísir af svona höggum. Mér finnst svona lagað alls ekki eiga heima á handboltavelli,“ sagði Hallberg. Fékk innblástur frá FH-ingum Einar Bragi skoraði sjö mörk í leiknum og í umfjöllun Kristianstadsbladet segir að hann hafi ráðið úrslitum í framlengingunni, sem Kristianstad vann 6-3, meðal annars með algjörri rakettu einni og hálfri mínútu fyrir leikslok. Sjálfur sagði Einar FH hafa veitt sér innblástur til að vinna leikinn og ljóst að hann fylgist grannt með úrslitaeinvígi sinna gömlu félaga gegn Val sem lýkur einmitt með oddaleik í kvöld. „Ég sat og horfði á mitt gamla lið FH sem var 2-1 undir í íslenska úrslitaeinvíginu. Þeim tókst að vinna eftir framlengingu og jafna í 2-2 og þá hugsaði ég með mér: „Það munum við einnig gera“,“ sagði Einar.
Sænski handboltinn Mest lesið Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Íslenski boltinn Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ Íslenski boltinn Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust Körfubolti Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Enski boltinn Er búinn að glíma við þunglyndi Fótbolti Ögmundur laus allra mála hjá Val Íslenski boltinn „Stúkan er of þögul“ Fótbolti „Þetta hefur verið ótrúlega erfitt“ Sport Fleiri fréttir Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Sjá meira