Valverde segist bara hafa rekið höfuðið í borð Ágúst Orri Arnarson skrifar 7. maí 2026 20:53 Federico Valverde er tilbúinn að taka afleiðingum. Fran Santiago/Getty Images Federico Valverde hlaut höfuðáverka og verður frá í 10-14 daga eftir rifrildi við liðsfélaga sinn hjá Real Madrid. Valverde segir hins vegar að engin högg hafi flogið milli hans og Aurelién Tchouameni.
Real Madrid staðfesti fyrr í kvöld að úrúgvæski miðjumaðurinn verði frá í allt að tvær vikur og muni missa af El Clasico leiknum gegn Barcelona um helgina. Hann hafi hlotið höfuðáverka í viðskiptum sínum við Aurelién Tchouameni fyrr í dag. Nánar má lesa um það hér fyrir neðan en umfjöllun Vísis er byggð á umfjöllun Madrídarmiðilsins Marca. Valverde birti síðan yfirlýsingu í sögu sinni á Instagram þar sem hann sagði málið einn stóran misskilning og söguna hafa verið verulega ýkta. Hann sagði að hvorki hann né Tchouameni hefðu látið höggin tala þegar þeir lentu í rifrildi á æfingu í dag. Hann hefði rekið höfuðið í borð og fengið smá skurð. Valverde axlaði ábyrgð á rifrildinu og sagði Real Madrid eitt það mikilvægasta í sínu lífi. Hann kvaðst tilbúinn til að taka þeim afleiðingum sem hegðun hans myndu fylgja. Lauslega þýðingu frá yfirlýsingu Valverde, sem var skrifuð á spænsku, má lesa hér fyrir neðan. „Í gær lenti ég í atviki með liðsfélaga mínum á æfingu, þar sem þreyta vegna og gremja gerðu allt verra. Í venjulegum búningsklefa geta svona hlutir gerst og eru leystir innan hópsins án þess að verða opinberir. Augljóslega er einhver á bak við þetta, sem dreifir sögunni hratt, og ásamt titlalausu tímabili þar sem Real Madrid er alltaf undir smásjá, er allt blásið úr samhengi. Í dag áttum við í öðrum ágreiningi. Í rifrildinu rak ég höfuðið óvart í borð, sem olli litlum skurði á enninu sem krafðist venjulegrar heimsóknar á spítala. Valverde birti yfirlýsingu á Instagram eftir rifrildi við Aurelien Tchouameni. instagram / @fedevalverde Á engum tímapunkti hefur liðsfélagi minn slegið mig og ég hef ekki slegið hann heldur, þó ég skilji að fyrir ykkur sé auðveldara að trúa því að við höfum lent í slagsmálum eða að það hafi verið viljandi, en það gerðist ekki. Ég biðst afsökunar. Ég biðst innilega afsökunar því þetta ástand særir mig, þessi stund sem við erum að ganga í gegnum særir mig. Real Madrid er eitt það mikilvægasta í lífi mínu og ég get ekki skeytt svona um það. Niðurstaðan er uppsöfnun atriða sem ná hámarki í tilgangslausu rifrildi, sem skaðar ímynd mína og gefur færi á að menn skáldi, rægi og ýki atvik. Ég efast ekki um að allur ágreiningur sem við gætum haft utan vallar hverfur á vellinum, og ef ég þarf að verja það inni á leikvanginum, þá verð ég fyrstur til þess. Ég ætlaði ekki að tjá mig fyrr en í lok tímabilsins. Við duttum út úr Meistaradeildinni og ég hélt reiði minni og gremju fyrir sjálfan mig. Við höfum sóað öðru ári og ég var ekki í aðstöðu til að vera að birta færslur á samfélagsmiðlum þegar eina andlitið sem ég átti að sýna var á vellinum, og mér finnst það vera það sem ég gerði. Þess vegna er ég sá sem er mest hryggur og sár yfir því að vera í þessari stöðu sem kemur í veg fyrir að ég geti spilað næsta leik vegna læknisfræðilegra ákvarðana. Ég gefalltaf allt mitt, allt til enda, og það særir mig meira en nokkurn annan að geta það ekki. Ég er til taks fyrir félagið og liðsfélaga mína og mun vinna með þeim, hvaða ákvörðun sem þeir telja nauðsynlega. Takk fyrir.”
Spænski boltinn Real Madrid CF Mest lesið Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Sjá meira