„Þetta er náttúrulega algjörlega fáránlegt“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 9. maí 2026 12:32 Pétur Marteinsson oddviti Samfylkingar í Reykjavík. vísir/anton Oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík segir kreditkortafærslur borgarstjóra með korti borgarinnar alvarlegt mál en að hans mati hefur borgarstjóri gefið nægilegar skýringar á færslunum og svarað vel fyrir sig.
Kreditkortafærslur Heiðu Bjargar Hilmisdóttur borgarstjóra með korti embættisins hafa verið töluvert til umfjöllunar síðustu daga en notkunin nemur um 750 þúsund krónum á tímabili hennar í embætti. Í gær var greint frá því að skrifstofa borgarstjóra hafi gert 23 skriflegar athugasemdir við færslurnar sem borgarstjóri endurgreiddi að hluta í kjölfar þess að fjölmiðlar spurðust fyrir um málið. Heiða segir notkunina með öllu eðlilega. Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík sem skákaði Heiðu í prófkjöri Samfylkingarinnar, segist líta málið alvarlegum augum en að hans mati sé málinu lokið nú þegar Heiða hefur gefið skýringar á færslunum. „Í fyrsta lagi finnst mér það alveg grundvallaratriði að borgarbúar geti treyst því að það sé farið með hverja einustu krónu af þeirra peningum af fullri virðingu. Þannig að maður tekur svona mál alvarlega. Ég talaði við Heiðu þegar ég heyrði fyrst af þessu núna bara um miðja vikuna og um mikilvægi þess að hún myndi svara þessu öllu og koma hreint fram og svara öllum spurningum skilmerkilega. Hún er núna búin að birta allar sínar færslur og gefa útskýringar á þeim og mér finnst það vera sannfærandi eins og staðan er í dag. Hún sagði að hún væri búin að fylgja öllum ráðleggingum og svona hvernig ætti að nota þetta kort og koma bara hreint fram.“ Aðspurð sagði Heiða Björg í gær að hún hafi íhugað hvort einhver hafi reynt að koma höggi á sig með því að vekja athygli á færslunum. Spurð hvort hún telji að einhver innan Samfylkingarinnar sé að verki svaraði hún ekki með beinum hætti og sló ekki skjaldborg um samflokksmenn sína. Hvað finnst þér um það svona stuttu fyrir kosningar þegar vika er til stefnu? „Já, ég tók eftir því en þú veist það, þetta er náttúrulega algjörlega fáránlegt. Að Samfylkingin sé að planta einhverju svona vikur fyrir kosningar og það sjá það allir og þetta er náttúrulega bara eitthvað leikrit og varla hægt að fara inn í þá umræðu. Þetta er svo fáránlegt. Það eru að sjálfsögðu ekki hagsmunir Samfylkingarinnar að planta einhverri svona vitleysu. Það er bara óþarfi að svara því.“ Hann segir einnig óþarfi að velta fyrir sér hvort einhver utan Samfylkingarinnar hafi reynt að koma höggi á borgarstjóra. Hann telur ekki að málið muni hafa nein sérstök áhrif á fylgi flokksins í borginni. Fyrir honum er málinu nú lokið þar sem Heiða hefur komið skýringum sínum á framfæri. „Ég velti fyrir mér einni spurningu. Kortið lá óhreyft hjá Degi B. Eggertssyni í tíu ár og svo tekur Einar Þorsteinsson við og þá fer hann að nota kortið og Heiða líka. Ég veit ekki hvort að reglunum hafi verið breytt en spurningin er hvort borgarstjóri eigi að vera með svona kort til að strauja þegar þarf á. Ég vona að þetta mál sé frá núna eftir þesar útskýringar og við getum bara haldið áfram með kosningabaráttuna.“ Eins og áður segir gerði skrifstofa borgarstjóra 23 athugasemdir við færslur borgarstjóra. Spurður hvort honum finnist það eðlilegt segir hann: „Hún lýsir náttúrulega bara öllum færslunum og gefur útskýringar en segir jafnframt að það hafi skort á kvittanir og fylgiskjöl. Náttúrulega kemur þetta kannski ekkert vel út, svona út á við. Nú veit ég ekki hvernig önnur innkaupakort eru og hversu margar athugasemdir eru gerðar við þau, en ég held að þetta séu alveg fullnægjandi skýringar hjá Heiðu.“
Mest lesið Farþegi Norrænu greindist með annað afbrigði hantaveiru Erlent „Þetta er náttúrulega algjörlega fáránlegt“ Innlent Flugi aflýst vegna áhafnarskorts í annað sinn í vikunni Innlent Sérsveitaraðgerð í Vestmannaeyjum Innlent Maðurinn handtekinn og fluttur til Reykjavíkur í nótt Innlent „Auðvitað hef ég íhugað það“ Innlent Fólki yfir fimmtugt síður boðið í atvinnuviðtöl Innlent Labbaði 57 kílómetra heim úr vinnunni: „Af hverju bý ég ekki nær“ Innlent Myndir af lífinu um borð í hantaveiruskipinu Erlent Bjó sér til vopn með því að setja steinhellu í sokk Innlent Fleiri fréttir Keyrði niður ljósastaur á Vesturlandsvegi Labbaði 57 kílómetra heim úr vinnunni: „Af hverju bý ég ekki nær“ Fólki yfir fimmtugt síður boðið í atvinnuviðtöl Starfsemi gæti hafist í nýjum Listaháskóla innan fjögurra ára Þriðja viljayfirlýsingin frá árinu 2007 undirrituð „Þetta er náttúrulega algjörlega fáránlegt“ Oddviti Samfylkingar bregst við færslum borgarstjóra Flugi aflýst vegna áhafnarskorts í annað sinn í vikunni Maðurinn handtekinn og fluttur til Reykjavíkur í nótt „Sá gamli er miklu fallegri“ Bjó sér til vopn með því að setja steinhellu í sokk Sérsveitaraðgerð í Vestmannaeyjum Fær ár fyrir hvora flösku af amfetabínbasa Segir þekkt andlit mikið auglýst, jafnvel á kostnað málefna Drógu aflvana fiskibát í land „Beinlínis gengið í skrokk á fólki“ Myndskeiðið byggi á „netmemi og tölvuleikjamenningu“ „Auðvitað hef ég íhugað það“ Borgarstjóri í beinni um umdeildar kortafærslur Engin bið eftir plássi á meðferðarheimilum ungmenna Endurgreiddi eftir að fjölmiðlar spurðu út í innkaupakortið Lögregla sögð vilja koma höggi á blaðamenn Gagnrýna myndband Miðflokksins: „Þetta er bara Sovét-Ísland í dag“ Ótrúlegt kjörtímabil að baki á Vopnafirði Formaður Heimssýnar varar við ofbeldi gangi Ísland í ESB Stykkishólmur verður að vera annað og meira en svefnpláss Mikil tímamót fyrir Víkinga, byrja á bílastæðum „Ég kýs ekki þau sem vilja rífa höll barnanna“ Borgarstjóri fer í saumana á kortafærslunum Fundu snyrtistofuna við húsleit í kjölfar umferðareftirlits Sjá meira