Fyrrverandi ráðherra vill þvinga fram leiðtogakjör Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 10. maí 2026 10:27 Starmer er valtur eftir sögulegt afhroð flokksins. Getty Taumhald Keirs Starmer forsætisráðherra Bretlands á Verkamannaflokkinum virðist ætla að renna honum úr greipum og stemningin innanbúðar nálgast suðupunkt eftir afhroð í sveitarstjórnarkosningum í vikunni. Fyrrverandi ráðherra hefur nú gengið fram fyrir skjöldu og skorað á Starmer að víkja.
Þingkonan Catherine West, sem var áður aðstoðarráðherra í utanríkisráðuneytinu, steig fram í viðtali við breska ríkisútvarpið í gær og sagði að byði sig enginn fram til höfuðs Starmer fyrir morgundaginn gerði hún það sjálf. Skýrendur og álitsgjafar á Bretlandseyjum segja hæpið að hún telji sig eiga erindi í formannsstólinn og er henni lýst sem „stalking horse“, sem vísar til þess að veiðimaður feli sig á bak við hestinn sinn til að styggja ekki endurnar. Hún vilji þannig þvinga þá sem hafa legið undir feldi til að gefa formlega kost á sér. „Ég myndi helst vilja að ríkisstjórnin stokkaði upp innan sinna raða, þar sem er nóg af hæfileikafólki, og að Keir fengi annað hlutverk sem hann gæti notið sín í, kannski í alþjóðamálum,“ sagði West í samtali við BBC. En ef það gerist ekki fyrir morgundaginn sagðist hún vera að „vara ríkisstjórnina við“ því að hún muni sjálf reyna að knýja fram leiðtogakjör. Yfirlýsingar West hafa vægast sagt valdið fjaðrafoki innan flokksins sem virðist hafa gert ráð fyrir að fá lengri tíma til að ráða ráðum sínum. Innanbúðarmenn sem Sky hefur rætt við í gærkvöldi og í morgun hafa gefið mjög ólík svör varðandi það hver staðan raunverulega er innan þingflokksins. Haft er eftir þingmönnum að allir kappkosti við að sannfæra West um að draga í land en öðrum að Starmer hafi lítið sem ekkert traust innan raða flokksins. Það flækir sömuleiðis málin að borgarstjórinn í Manchester, Andy Burnham, sem talist hefur líklegasti arftaki Starmer, sé eðli málsins samkvæmt ekki sitjandi þingmaður. Hann má því ekki gefa kost á sér í leiðtogakjöri sem þessu sem á sér stað utan aðalfundar. Sjálfur segist Starmer ekki hafa í hyggju að víkja.
Bretland Kosningar í Bretlandi Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Fleiri fréttir Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Sjá meira