Suðvestanátt og væta í flestum landshlutum Atli Ísleifsson skrifar 11. maí 2026 07:12 Hiti verður á bilinu sex til tólf stig. Vísir/Vilhelm Veðurstofan spáir suðvestanátt á landinu í dag sem víða verður á bilinu átta til þrettán metrar á sekúndu.
Á vef Veðurstofunnar segir að búast megi við dálítilli vætu í flestum landshlutum, en skýjað með köflum síðdegis og styttir upp að mestu. Hiti verður á bilinu sex til tólf stig. „Það snýst í norðan 8-13 á morgun. Rigning eða slydda með köflum norðan- og austanlands, en bjartviðri sunnan heiða. Það kólnar fyrir norðan og hitinn á landinu á morgun frá 2 stigum í innsveitum norðaustantil, upp í 12 stig syðst. Á miðvikudag er síðan útlit fyrir hægan vind á landinu og yfirleitt þurrt framan af degi, en seinnipartinn má búast við smávegis vætu á víð og dreif. Hiti 5 til 10 stig,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Snýst í norðan 8-13 m/s, en 13-18 í vindstrengjum á suðaustanverðu landinu. Rigning eða slydda með köflum norðan- og austanlands, en bjartviðri sunnan heiða. Hiti frá 2 stigum í innsveitum norðaustantil, upp í 12 stig syðst. Á miðvikudag: Hæg breytileg átt og þurrt að mestu á landinu framan af degi. Sunnan 3-8 seinnipartinn og þykknar upp með rigningu eða slyddu, fyrst vestanlands. Hiti 3 til 10 stig. Á fimmtudag (uppstigningardagur): Fremur hæg norðlæg eða breytileg átt. Dálitlir skúrir eða slydduél, en skýjað með köflum og þurrt að kalla sunnanlands. Hiti 3 til 12 stig, mildast syðst. Á föstudag: Suðaustanátt með rigningu, en bjartviðri um landið norðaustanvert. Hiti 6 til 12 stig, hlýjast fyrir norðan. Á laugardag: Suðlæg átt og skúrir, en léttir til norðaustanlands síðdegis. Hiti 7 til 13 stig. Á sunnudag: Suðaustanátt með skúrum, en léttskýjað um landið norðanvert. Hiti breytist lítið.
Veður Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Erlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Fleiri fréttir Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Sjá meira