Rekstraraðilar á Ártúnshöfða lýsa upplausnarástandi vegna borgaryfirvalda Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 11. maí 2026 17:39 Telma Tómasson verður ykkur samferða í kvöldfréttum Sýnar í kvöld. Hátt í sextíu rekstraraðilar sem reka fyrirtæki á Ártúnshöfða segja framtíð rekstursins í lausu lofti vegna óvissu um lóðaleigusamninga við Reykjavíkurborg. Talsmenn þeirra segja gríðarlega hagsmuni í húfi og fjölda starfa undir. Berghildur Erla ræddi við þá eftir hitafund með oddvitum flokkanna sem bjóða fram í borginni.
Skipulögð glæpasamtök reyna ítrekað að komast inn fyrir netvarnir íslensku bankanna og nota gervigreind til að auðvelda sér verkið. Rúmeni var á dögunum handtekinn grunaður um að hafa nýtt sér villu í kerfi Arion banka til að millifæra á sig um 160 milljónir. Framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu segir nýjan veruleika blasa við. Óvenjumargir hafa kosið utan kjörfundar fyrir þessar sveitarstjórnarkosningar en aukningin frá síðustu sveitarstjórnarkosningum nemur hátt í fjörutíu prósentum. Hvað veldur? Við ætlum að afla svara í beinni útsendingu. Fleiri hafa greinst með hina banvænu Hantaveiru en heilbrigðisyfirvöld hafa í gær og í dag reynt að koma farþegum skemmtiferðaskipsins Hondius til síns heima. Skipstjóri Hondius birti átakanlegt myndband í dag þar sem hann rekur raunir farþeganna síðustu vikur. Einhverjir merkustu dýrgripir íslenskra fornsagna, fimm handrit sem fengin eru að láni frá Svíþjóð, verða til sýnis í Eddu, húsi íslenskunnar, næstu sex mánuði. Kristján Már Unnarsson fréttamaður okkar fékk að fylgjast með þegar handritin voru tekin upp úr kössunum. Í sportpakkanum mælum við okkur mót við Þórdísi Ólöfu Jónsdóttur sem sigraði Bakgarðshlaupið um helgina en hún stefnir á að slá heimsmet í kvennaflokki. Og í Íslandi í dag kynnumst við ungri fjölskyldu sem setur það ekki fyrir sig að eiga lítið barn og ferðast sem aldrei fyrr. Þetta og margt fleira í kvöldfréttum á samtengdum rásum Sýnar, Vísis og Bylgjunnar á slaginu 18:30. Klippa: Kvöldfréttir 11. maí 2026
Kvöldfréttir Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Fleiri fréttir „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Sjá meira