Forsetinn fúll út í blaðamenn: „Ég er ekki að fara neitt“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 12. maí 2026 18:03 Blaðamannafundur Pérez var í meira lagi áhugaverður. EPA/Juanjo Martin Florentino Pérez, forseti Real Madrid, boðaði óvænt til blaðamannafundar síðdegis þar sem hann tilkynnti um endurframboð til forseta, þvert á það sem búist var við. Hann nýtti tækifærið til að láta skoðanir sínar á blaðamannastéttinni í ljós.
Spænskir fjölmiðlar vissu ekki hvaðan á sig stóð veðrið þegar þeir voru skyndilega boðaðir til fundar í höfuðstöðvum Real Madrid. Þegar spáð var í eyðurnar þótti þeim líklegast að forsetinn myndi segja af sér. Real Madrid hefur ekki fagnað góðu gengi undanfarið og fór í gegnum tímabilið titlalaust. Xabi Alonso var rekinn úr þjálfarastarfinu og líklegt þykir að eftirmaður hans, Alvaro Arbeloa, fari sömu leið. Pérez sagði hins vegar ekki af sér, eins og blaðamenn bjuggust við, heldur tilkynnti hann um endurframboð til forseta. Fundurinn var í raun haldinn til að hampa afrekum hans í forsetastarfinu og færa rök fyrir því að hann eigi endurkjör skilið. Blaðamenn í herferð gegn honum Þá sagði Pérez að vissir fjölmiðlar væru í herferð gegn honum og félaginu. „Því miður verð ég að tilkynna ykkur að ég er ekki að fara neitt. Ég boða til kosninga og mun bjóða mig aftur fram til forseta,“ sagði Pérez og lét gamminn geysa: „Furðuleg staða er komin upp, þar sem herferð gegn mér er hafin. Blöðum hefur verið flett um það: Hvar er Florentino Pérez? Þeir segja að ég þreyttur. Þeir segja að ég sé að glíma við veikindi,“ sagði Pérez og þvertók fyrir það að hann væri ekki hæfur til að sitja lengur í embætti forseta. Ætlar að segja upp áskrift að ABC og útrýma spillingu innan UEFA Pérez beindi orðum sínum sérstaklega að spænska miðlinum ABC og úthúðaði einum blaðamanni, Ruben Canizares. Forsetinn var augljóslega mjög ósáttur við umfjöllun ABC og benti á að blaðið hefði tapað 25 milljónum evra á síðasta ári. Hann tilkynnti svo að hann væri búinn að segja upp áskrift sinni að ABC. Pérez hélt langa tölu til viðbótar og sagðist meðal annars sannfærður um að undir hans stjórn gæti Real Madrid útrýmt spillingu innan UEFA og spænsku dómarasamtakanna. Þá ítrekaði hann oft og mörgum sinnum að Real Madrid væri félag í þágu fólksins og forsetinn kvaðst fullviss um að vilji fólksins væri að hann héldi áfram.
Spænski boltinn Real Madrid CF Mest lesið Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Sjá meira