Sænska félagið AGRD Partners fjárfestir í BBA//Fjeldco
Félagið AGRD Partners, sem hefur vaxið hratt á sænska lögfræðimarkaðinum, hefur klárað fjárfestingu í BBA//Fjeldco, einni umsvifamestu lögmannsstofu landsins undanfarin ár. AGRD er að meirihluta í eigu norræna sjóðastýringarfélagsins Axcel en kaupin á BBA//Fjeldco eru önnur fjárfesting sjóðsins á Íslandi á skömmum tíma.