Erna Mist og Þorleifur Örn eiga von á öðru barni Magnús Jochum Pálsson skrifar 13. maí 2026 10:54 Þorleifur Örn og Erna Mist eru glæsilegt listapar sem hefur verið saman í rúm tvö ár og eiga von á öðru barni sínu saman. Owen Fiene Erna Mist Yamagata myndlistarkona og Þorleifur Örn Arnarsson leikstjóri eiga von á öðru barni sínu saman. Fyrir eiga þau dótturina Þórhildi Nótt sem fæddist í janúar 2025.
Greint var frá því að Erna Mist og Þorleifur Örn væru nýtt par í upphafi árs 2024 en þá vakti helst athygli tuttugu ára aldursmunurinn milli þeirra, Þorleifur er 78-módel en Erna 98-módel. Sjá einnig: Erna Mist og Þorleifur keyptu útsýnishæð í Vesturbænum Margt hefur gerst í lífi parsins síðan þá, þau keyptu sér saman hæð í Vesturbænum og eignuðust dóttur í byrjun árs 2025. Í millitíðinni unnu þau saman að leiksýningunni Ketti á heitu blikkþaki sem var frumsýnd í Borgarleikhúsinu í lok árs 2024, Þorleifur leikstýrði sýningunni og Erna gerði leikmynd og búninga. Síðan þá hefur parið verið mikið erlendis þar sem Erna hefur haldið myndlistarsýningu í Peking og Þorleifur leikstýrt Tristan og Ísold eftir Wagner í Bæjaralandi og Macbeth í Vínarborg. Parið er núna statt í Zürich í Sviss þar sem Þorleifur frumsýnir óperuna Tannhäuser eftir Wagner þann 21. júní næstkomandi. En það er ekki það eina sem er um að vera hjá parinu seinni hluta júnímánaðar. Erna Mist birti lágstemmda bumbumynd af sér á Intagram-hringrás sinni í gærkvöldi og skrifaði við hana: „Rúmur mánuður í lítinn herramann.“ Það virðist því strákur munu bætast í hópinn og fjölskyldan verða að svokallaðri vísitölufjölskyldu. Erna birti þessa mynd af sér á miðlunum.
Ástin og lífið Barnalán Leikhús Sviss Tímamót Mest lesið Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Tónlist Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Lífið Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Lífið Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Lífið Hvað veistu um... íslenska hönnun? Lífið Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Lífið Funheit í fimm ára afmæli Lífið Gellustælar og íslenskar listagyðjur í París Tíska og hönnun Fleiri fréttir Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Ice Spice fór á klósettið á OTO „Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ Auglýsing fyrir Bleiku slaufuna frumsýnd á Vísi og Sýn Sjá meira