Ákvörðun um að sýna Eurovision tekin fyrir barnafjölskyldur Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 13. maí 2026 14:07 Stefán Eiríksson segir RÚV hafa viljað gefa fólki kost á að horfa á Eurovision með íslenskum þuli en Gunnar Smári Egilsson og Ágústa Eva Erlendsdóttir furða sig á ákvörðuninni. Ríkisútvarpið sýnir Eurovision í ár þar sem útvarpið vildi gefa fólki sem hefur áhuga á Eurovision kost á að fylgjast með keppninni með íslenskum þul frekar en að vísa því fólki á erlenda miðla sem einnig sýni keppnina. Keppnin sé auk þess vinsæl meðal fjölskyldufólks og þess vegna fór Ríkisútvarpið ekki sömu leið og spænska, írska og slóvenska ríkisútvarpið sem ákváðu hvorki að taka þátt í keppninni né sýna frá henni.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í svari Stefáns Eiríkssonar útvarpsstjóra til Vísis. Líkt og alþjóð veit tekur Ísland ekki þátt í Eurovision í ár, í fyrsta sinn í fjörutíu ár vegna hernaðar Ísraela á Gasa. Ísrael komst einmitt áfram úr undankeppninni á þriðjudagskvöld en Finnum er spáð sigri í veðbönkum í ár. Undankeppnin í gærkvöldi var sýnd á RÚV 2 og færðist síðar einnig yfir á RÚV 1 klukkan 20:15. „Ha?“ Tilkynnt var í desember að Ísland myndi sniðganga Eurovision keppnina í ár og feta í fótspor Hollendinga, Spánverja, Íra og Slóvena vegna þátttöku Ísrael. Sagði í tilkynningu frá Ríkisútvarpinu þá að hvorki myndi ríkja gleði né friður um þátttöku Íslands í Eurovision, í ljósi opinberrar umræðu hér á landi og viðbrögðum við ákvörðun EBU um að vísa Ísrael ekki úr keppni. Það vakti því athygli að RÚV skildi því ákveða að sýna keppnina en Hollendingar hafa einnig gert það þrátt fyrir sniðgöngu, en ekki Írar, Spánverjar og Slóvenar eins og áður hefur komið fram. „Ha? Ríkisútvarpið dregur sig út úr Júróvision (vegna þess að engin gleði tengist keppninni meðan Ísrael tekur þátt) en sýnir samt undankeppni Júróvision í kvöld. Þar sem Ísrael tekur þátt. Er þetta ekki eitthvert rugl?“ spyr Gunnar Smári Egilsson á Facebook síðu sinni, við miklar undirtektir. „Bara svo týpískt,“ skrifar Ágústa Eva Erlendsdóttir fyrrum Eurovision-fari og flestir eru á sama máli. RÚV sakað um tvískinnungshátt og hræsni. Geta horft með íslenskum þul Vísir sendi útvarpsstjóra fyrirspurn vegna málsins. Vísaði þar til umræðunnar á Facebook og fréttir þess efnis að keppnin sé ekki sýnd á Spáni, Írlandi og Slóveníu og spurði: Hvers vegna er keppnin sýnd á Íslandi, hver tók ákvörðunina og hvenær. Stefán Eiríksson útvarpsstjóri segir í svari sínu að Eurovision sé vinsæll sjónvarpsþáttur. „Eki síst hjá börnum og fjölskyldum saman, og við vildum gefa fólki sem áhuga hefur á keppninni að fylgjast með henni með íslenskum þul, fremur en að vísa því fólki sem áhuga hefur á keppninni á erlenda miðla, sem einnig sýna keppnina.“
Eurovision Ríkisútvarpið Eurovision 2026 Fjölmiðlar Börn og uppeldi Mest lesið Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Haribo-kastalar og hrekkjavökugleði í Bónus Lífið samstarf Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Tónlist Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Lífið Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Lífið Fleiri fréttir Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Sjá meira