Innherji

Arð­semi Kviku nálgast mark­mið með væntan­legri stórri arð­greiðslu

Hörður Ægisson skrifar
Þóknanatekjur minnkuðu lítillega á milli ára samhliða dræmri virkni á verðbréfamörkuðum. Ármann Þorvaldsson, bankastjóri Kviku, benti á að veltan á hlutabréfamarkaði hefði skroppið saman um meira en 40 prósenta á fyrsta fjórðungi og sagði þessa þróun vera „áhyggjuefni“.
Þóknanatekjur minnkuðu lítillega á milli ára samhliða dræmri virkni á verðbréfamörkuðum. Ármann Þorvaldsson, bankastjóri Kviku, benti á að veltan á hlutabréfamarkaði hefði skroppið saman um meira en 40 prósenta á fyrsta fjórðungi og sagði þessa þróun vera „áhyggjuefni“.

Afkoma Kviku batnaði nokkuð á fyrsta fjórðungi, einkum drifin áfram af auknum vaxtatekjum samhliða kröftugum lánavexti í Bretlandi og lægri fjármagnskostnaði, og að teknu tilliti til væntanlegrar stórrar arðgreiðslu til hluthafa er bankinn að nálgast markmið sitt um tuttugu prósenta arðsemi. Bankastjóri Kviku segir mikinn samdrátt í veltu á hlutabréfamarkaði vera „áhyggjuefni“ og þá héldu lífeyrissjóðir áfram að taka eignir sína úr stýringu bankans.


Tengdar fréttir

Arð­semin tals­vert undir mark­miði eftir „slakar“ þóknana­tekjur á fjórðungnum

Hagnaður Kviku á síðasta fjórðungi 2025 skrapp nokkuð saman á milli ára, meðal annars vegna dræmra þóknanatekna, og var arðsemi bankans fyrir árið í heild sinni talsvert frá markmiði. Viðbrögð greinenda við uppgjörinu voru ólík en góður gangur var í vaxtatekjum og bankinn gæti greitt umtalsverða sérstaka arðgreiðslu til hluthafa síðar á árinu.

Breskir vogunar­sjóðir um­svifa­mestir í kaupum á fyrstu evruút­gáfu Kviku

Tæplega tvöföld umframeftirspurn var á meðal fjárfesta þegar Kvika kláraði sína fyrstu skuldabréfaútgáfu í evrum fyrir helgi en kaupendahópurinn samanstóð einkum af vogunarsjóðum frá Bretlandi. Kjörin bötnuðu nokkuð frá upphaflegu viðmiði þegar útboðið hófst snemma á föstudagsmorgun en vaxtaálagið á útgáfuna er um hundrað punktum hærra borið saman við sambærileg evrubréf stóru íslensku viðskiptabankanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×