„Það var bara eins og kóngurinn væri mættur í bæinn“ Valur Páll Eiríksson skrifar 13. maí 2026 16:47 Orri Steinn Óskarsson var öflugur í fagnaðarlátunum eftir bikartitilinn. Skjáskot/Instagram Landsliðsfyrirliðinn Orri Steinn Óskarsson kemur á flugi inn í landsleikina sem fram undan eru. Hundrað þúsund manns tóku við honum í sigurhátíð í San Sebastian þar sem hann tók lagið eftir bikartitil Real Sociedad á dögunum.
Orri Steinn og félagar hans í Real Socided unnu sigur á Atlético Madrid eftir vítaspyrnukeppni fyrir framan troðfullan 70 þúsund manna völl í Sevilla á dögunum. Hann hefur átt erfitt uppdráttar í vetur vegna meiðsla en er kominn á fullt á besta tíma. Hann finnur þá mikilvægi titilsins í San Sebastian, heimaborg Real Sociedad. „Það var auðvitað rosalegt að koma til baka. Fólk var komið á flugvöllinn og fólk að elta okkur í rútunni. Síðan var skrúðganga daginn eftir þar sem komu hundrað þúsund manns og allar götur lokaðar. Það var bara eins og kóngurinn væri mættur í bæinn,“ „Maður fann gleðina frá fólkinu sem ég hef aldrei fundið áður á þessu stigi. Að fá að gera svona margt fólk svona glatt, og maður finnur það enn í dag þegar maður hittir fólk úti á götu að það er mjög þakklátt fyrir að hafa fengið að upplifa svona og það komi bikar í bæinn. Það er bara einstakt,“ segir Orri Steinn í Sportpakkanum á Sýn. View this post on Instagram A post shared by Vísir (@visir.is) Stuðningslag Sociedad manna snýr að Orra og bikartitlinum sem hefur verið kyrjað í allan vetur. Það virtist því skrifað í skýin að liðið skyldi fara í úrslitin og fagna sigri. Hann sýndi svo sönghæfileikana á sigurhátíðinni og söng lagið með tugum þúsunda aðdáenda. „Ég hugsaði nú að þetta yrði eitt af síðustu skiptunum sem þetta yrði tekið væri bara gott að kýla á þetta. Ég er ekki mikið fyrir að syngja þannig að ég hugsaði að fyrst að bikarinn var að klárast yrði þetta í síðasta skiptið og gefa fólki smá stemningu. Svo er þetta núna búið og gleymt, vonandi,“ segir Orri og hlær. Fréttina má sjá í spilaranum að ofan.
Spænski boltinn Mest lesið Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Sjá meira