„Mann fyrir mann eigum við að vinna þá“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 13. maí 2026 23:14 Guðmundur Kristjánsson í baráttunni í leik kvöldsins. Vísir/Anton Brink Guðmundur Kristjánsson, fyrirliði Stjörnunnar, segir að liðið hafi átt skilið að fara áfram eftir að Stjarnan sló KR út úr Mjólkurbikar karla í kvöld.
Stjarnan vann 2-1 sigur gegn KR í 16-liða úrslitum í kvöld og er því á leið í átta liða úrslit. KR-ingar sóttu stíft í seinni hálfleik, en náðu ekki að skapa sér opin marktækifæri til að jafna metin. „Mér leið mjög vel, sérstaklega í fyrri hálfleik þar sem mér fannst við skapa okkur fullt af færum og vorum mjög góðir. Við vorum verðskuldað yfir í hálfleik, en svo auðvitað reyna þeir að sækja aðeins meira í seinni hálfleik. Ég hefði viljað vinna þennan leik stærra, en mér fannst ógeðslega góður andi í liðinu í kvöld,“ sagði fyrirliði Stjörnunnar. „Það er mikilvægt eftir að hafa tapað nokkrum leikjum að sjá að það er enn helvíti mikill eldmóður í okkur og að sjá hvað býr í okkur.“ KR-ingar fengu þó vítaspyrnu til að jafna metin í uppbótartíma fyrri hálfleiks. „Árni ver þetta víti frábærlega. Mér fannst þetta ekki endilega líta út fyrir að vera víti, en kannski var þetta víti. En við fáum það stór færi í fyrri hálfleik að ég hefði viljað að við hefðum skorað fleiri mörk,“ sagði Guðmundur. „Það sem er kannski mikilvægast í þessu er að sjá baráttuna í liðinu. Ef við erum alltaf svona þá munum við vinna fullt af leikjum. Það er búið að vera þannig í fullt af leikjum að okkur hefur bara vantað að halda markinu okkar hreinu ogþað hefur verið smá höfuðverkur hingað til.“ „Ef við mætum með hausinn rétt skrúfaðan á til að vinna vinnuna sem þarf að vinna þá erum við helvíti góðir.“ Eru með betri hóp en KR Hann segir að Stjörnuliðið sé með betri hóp en KR. „Ég er bú ekki búinn að sjá alla leikina hjá KR í sumar, en ég held að það séu ekkert mörg lið sem eru að mæta þeim maður á mann. Þeir fara í maður á mann vörn og við mætum þeim þannig. Mér fannst það ganga vel. Í seinni hálfleik breyta þeir aðeins og fara að kasta aðeins meiru fram, en að sama skapi leggjumst við aðeins aftar og þá verður hellings pláss til að sækja í.“ „Þetta er ákveðin skák sem fer í gang, en það er gaman í svona leik að mæta þeim maður á mann því ég vil meina að við séum með betri hóp. Mann fyrir mann þá eigum við að vinna þá. Við spiluðum fínan leik á móti þeim um daginn, en í seinni hálfleik þar verða róteringar og við missum aðeins tatkinn. En ég var bara helvíti ánægður með mína menn í þessum leik.“ Guðmundur segir einnig að sigurinn í kvöld skipti liðið miklu máli, eftir fjóra tapleiki í röð í deildinni. „Fótbolti er bara liðsíþrótt. Við erum allir með okkar sjálf og svo erum við með okkar kollektíva sjálf. Það þarf að vera andi og við þurfum að tengjast. Þegar við erum allir að vinna saman og myndum góða stemningu þá skiptir það ógeðslega miklu máli. Þegar lið er búið að tapa mörgum leikjum þá er bara hægara sagt en gert að ná að byggja upp stemningu og mómentum. Það er mjög mikilvægt sem lið að vinna þannig og mikilvægt bæði fyrir okkur og stuðningsmennina að ná að vinna hérna í kvöld. Þetta skiptir okkur ógeðslega miklu máli og ég er ekkert eðlilega ánægður með mína menn hérna í kvöld,“ sagði Guðmundur að lokum.
Mjólkurbikar karla Stjarnan KR Mest lesið Biðst afsökunar og afsalar sér sigrinum Sport Varð skotmark með því að ráða Frey: „Ákveðin áhætta fyrir mig“ Fótbolti Mun saga Arons endurtaka sig? Fótbolti Seldur frá Keflavík til Sýrlands Íslenski boltinn „Eins og að horfa á bíómynd“ Sport Strákarnir á Saga Class en stelpurnar aftar í vélinni Sport Tætti í sig fulltrúa ungstirnisins: „Hvernig eruð þið að hugsa um þennan strák?“ Enski boltinn „Setjum pressu á leikmenn að haga sér fullkomlega næstu tvö árin“ Fótbolti „Ef þetta hefði verið ég þá hefði ég hætt keppni“ Sport Heimir ræddi við hvern einasta leikmann um leikina við Ísraela Fótbolti Fleiri fréttir Real Sociedad - Bournemouth | Orri í Evrópu Fanney og Arna sáu um varnarvinnuna í góðum sigri Heimir ræddi við hvern einasta leikmann um leikina við Ísraela „Hversu mikil pressa var á honum?“ Sjáum til hvort þetta verði algjör þvæla Seldur frá Keflavík til Sýrlands Segir að Messi eigi að vinna Gullknöttinn Sleppir landsleikjunum fyrir brúðkaupsferð Tætti í sig fulltrúa ungstirnisins: „Hvernig eruð þið að hugsa um þennan strák?“ Klopp velur tvo landsliðshópa með sextán nýja Sextán í bann fyrir nasistakveðjur Varð skotmark með því að ráða Frey: „Ákveðin áhætta fyrir mig“ Hundrað marka Messi lét MLS-stjórann heyra það „Setjum pressu á leikmenn að haga sér fullkomlega næstu tvö árin“ Fagn Brynjólfs slær í gegn Boehly selur og kveður Chelsea Mun saga Arons endurtaka sig? Sunderland vann í fyrsta Evrópuleiknum síðan 1973 Enn eitt áfallið fyrir Manchester United Með fullt hús stiga eftir níu marka veislu Birta upptöku sem sannar kynþáttaníð gegn Mikael „Þá mun ég reka mig sjálfur“ Eiginkona og sonur vitni að grófri árás sjö stuðningsmanna FCK „Í raun og veru ætti ég ekki að þola hann“ „Hinna klúbbanna á Íslandi að elta þá“ Svona er hópurinn: Ísak Snær, Rúnar Alex og Arnór með Arnar kynnti nýjasta hópinn og mætti í spjall Rekinn eftir aðeins fjóra leiki í starfi Stórlaxarnir á eftir vonarstjörnu Manchester United sem vill burt Markvörður KR fór ítrekað fram: „Alveg stjörnubilað að horfa á þetta“ Sjá meira