„Bara djók sem gekk of langt“ Agnar Már Másson skrifar 14. maí 2026 16:07 „Þetta voru bara ungir peyjar sem voru að verki. Við heyrðum í foreldrum þeirra og þeir brugðust vel við; báðu þá um að þrífa þetta,“ segir Jón Þór hjá Miðflokknum. Samsett Mynd Frambjóðendum Miðflokkins í Vestmannaeyjum brá við aðkomuna að kosningaskrifstofunni sinni í dag þar sem ungir skemmdarvargar höfðu krotað typpi og skrifað „XD“ utan á veggi skrifstofunnar. „
Það voru vitni að þessu. Þetta voru bara ungir peyjar sem voru að verki. Við heyrðum í foreldrum þeirra og þeir brugðust vel við; báðu þá um að þrífa þetta, sem þeir gerðu að hluta, en það er auðvitað erfitt að ná þessu öllu af,“ segir Jón Þór Guðjónsson, oddviti Miðflokksins í Eyjum, í samtali við Vísi. Miðflokkurinn vakti athygli á málinu í færslu vegna málsins á Facebook og hafa nokkrir frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins gagnrýnt skemmdarverkið sem virðist hafa verið framið í þeirra nafni. Þar á meðal er Trausti Hjaltason sem skipar 2. sæti á listanum, sem segir að gjörningurinn sé ekki neinum sæmandi. „Þeim [sjálfstæðismönnum] fannst þetta ótrúlega leiðinlegt. Þau buðust til að hjálpa við að þrífa þetta,“ segir Jón Þór, sem kveðst að öðru leyti ekki vilja búa til meira mál úr þessu en þörf er á. „Þetta er bara djók sem gekk of langt,“ segir hann. Prakkaraskapur hefur vissulega einkennt ríginn milli Miðflokksmanna og Sjálfstæðismanna í kosningabaráttunni í Eyjum síðustu vikurnar. Til dæmis var Miðflokksfánum fyrir utan kosningaskrifstofuna skipt út fyrir fána Sjálfstæðisflokksins í skjóli nætur í apríl. „Við fílum alveg kýting í kosningabaráttunni, en skemmdarverk er ekki alveg sá kýtingur sem við vorum að búast við.“
Vestmannaeyjar Sveitarstjórnarkosningar 2026 Miðflokkurinn Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira