„Ég tek fulla ábyrgð“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 14. maí 2026 17:35 Jóhannes Karl Guðjónsson Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH, var afar ósáttur eftir 5-0 tap liðsins gegn Fylki í 16-liða úrslitum Mjólkurbikars karla í Árbænum í dag.
FH fékk á sig mark strax á sjöttu mínútu og var komið 3-0 undir eftir 23 mínútur. Jóhannes sagði byrjunina hafa reynst liðinu afar dýrkeypta. „Það er náttúrulega eitt að vera úr bikarnum, sem er virkilega svekkjandi, en ég er virkilega ósáttur með hvernig við byrjum þennan leik að einhverju leyti,“ sagði Jóhannes Karl eftir leik. „Fyrsta markið slær okkur svolítið út af laginu. Fylkismenn mættu mjög grimmir inn í leikinn og settu okkur í krefjandi stöðu.“ Of passífir í upphafi Jóhannes sagði FH hafa verið of passíft í upphafi leiks og ekki tekist að koma í veg fyrir að Fylkir kæmist í hættulegar stöður úti á köntunum. „Við þurftum að verjast svolítið inni á síðasta þriðjungi og vorum svolítið passífir. Við vissum að þeir myndu fara hátt á okkur með bakverðina og reyna að komast í yfirtölu út af köntunum,“ sagði Jóhannes. „Þeir voru með tvo sterka framherja og myndu koma mikið af boltum inn í teiginn. Við hefðum átt að vera aggressífari og reyna að stoppa þá miklu fyrr í þeirra nálgun.“ Fylkir gekk á lagið Fylkir nýtti sér stöðuna vel og var komið í 3-0 áður en fyrri hálfleikur var hálfnaður. Jóhannes sagði heimamenn hafa gengið frá leiknum snemma. „Þeir gerðu þetta virkilega vel, fá fyrsta markið og þvílíkan meðbyr með sér. Svo ganga þeir eiginlega bara frá okkur þarna í fyrri hálfleik og eru komnir í 3-0. Við sáum bara varla til sólar eftir það.“ Hann sagði margt hafa farið úrskeiðis hjá FH, ekki síst þegar liðið reyndi að halda boltanum. „Það var mikið um sendingafeila hjá okkur. Við ætluðum að reyna að halda miklu betur í boltann en það gekk ekki upp. Það gekk eiginlega ekkert upp hjá okkur í dag.“ Axlar sjálfur ábyrgð Jóhannes tók ábyrgð á frammistöðunni og sagði leikplanið ekki hafa gengið upp. „Ég tek fulla ábyrgð á því. Það er í mínum höndum að setja upp leikplanið fyrir þennan leik og ég held að það hafi klárlega sést að það gekk ekki upp. Það er á mína ábyrgð,“ sagði Jóhannes. FH er úr leik í bikarnum en liðið þarf fljótt að snúa sér að næsta verkefni í deildinni. „Það er ansi margt sem við getum lært af þessum leik því það var ekki mikið sem við gerðum vel. Á sama tíma þurfum við náttúrulega líka að ýta þessum leik til hliðar,“ sagði Jóhannes. „Við erum út úr bikarnum en það er erfiður leikur heima á móti KA á sunnudaginn. Við þurfum að vera ansi fljótir að skipta um ham og fara að undirbúa okkur fyrir deildina.“
Mjólkurbikar karla Fylkir FH Mest lesið Ingvar á leið í lyfjameðferð við illkynja krabbameini Íslenski boltinn Strákarnir læri af biturri reynslu Arnars með Davíð Oddssyni í Japan Fótbolti Fylkir - FH 5-0 | Heimir pakkaði gömlum lærisveinum saman með Mána fremstan í flokki Íslenski boltinn Stuðningsmaður Grindavíkur í bann fyrir bjórdósakast Körfubolti „Þetta hliðarspor mun ekki breyta þeirri vegferð sem ég er á“ Íslenski boltinn „FH er bara á sinni vegferð“ Íslenski boltinn Blaðran heldur áfram að bögga McIlroy Golf Trúir ekki öðru en að hann verði áfram Enski boltinn Kæra komin á borð KKÍ vegna Kane Körfubolti Lárus hættur í Þorlákshöfn Körfubolti Fleiri fréttir „Ég tek fulla ábyrgð“ „FH er bara á sinni vegferð“ Ingvar á leið í lyfjameðferð við illkynja krabbameini Ægir sló KA út og bikarmeistararnir flengdir Fylkir - FH 5-0 | Heimir pakkaði gömlum lærisveinum saman með Mána fremstan í flokki ÍA vann Grindavík í vítakeppni eftir mikla dramatík Uppgjörið: Stjarnan - KR 2-1 | Stjarnan náði fram hefndum „Tímapunkturinn hefði ekki getað verið mikið verri“ „Þetta hliðarspor mun ekki breyta þeirri vegferð sem ég er á“ Þróttur R. - Breiðablik 1-2 | Tíu Blikar tryggðu sig í átta liða úrslitin „Þetta er allt annað Fram-lið“ „Skagamenn eru bara ennþá að leita að nýju DNA“ Viðar Örn settur í agabann Sjáðu dramatíkina í Kópavoginum og öll mörkin úr Bestu deild kvenna Fjölluðu um aukið hártog: „Þetta er galið og út með þetta“ „Ef Örvar hefði látið sig detta hefði þetta verið víti“ Uppgjörið: Þróttur - Grindavík/Njarðvík 1-2 | Nýliðarnir unnu í Laugardalnum Uppgjörið: Fram - Víkingur 0-1 | Víkingssigur í Reykjavíkurslag „Þetta var vont“ „Get ekki sagt að þetta hafi verið sannfærandi sigur“ Uppgjörið: Breiðablik - Valur 3-2 | Ótrúlegur sigur Blika Þegar Martin Eyjólfsson varð Bjargvætturinn Sjáðu mark Hallgríms frá miðju Umfjöllun: Stjarnan - FH 1-2 | FH hafði betur í fjörugum nágrannaslag Uppgjörið ÍBV - Þór/KA 2-0 | Fullkomin byrjun nýliðanna heldur áfram Uppgjörið: KA - ÍBV 2-0 | Sjálfsmark sökkti gestunum í lok leiks Besta byrjun KR í efstu deild síðan árið 1959 Fullkomin byrjun Þróttara heldur áfram Sjáðu magnaða endurkomu KR og flautumark Fram Umfjöllun og viðtöl: ÍA - Keflavík 1-3 | Nýliðarnir hirtu stigin þrjú gegn Skagamönnum Sjá meira
Fylkir - FH 5-0 | Heimir pakkaði gömlum lærisveinum saman með Mána fremstan í flokki Íslenski boltinn
Fylkir - FH 5-0 | Heimir pakkaði gömlum lærisveinum saman með Mána fremstan í flokki Íslenski boltinn