Sjáðu Glódísi taka við bikarnum eftir sögulegan sigur Ágúst Orri Arnarson skrifar 15. maí 2026 07:03 Glódís Perla er fyrirliði Bayern og tók við bikarnum. Pau Barrena/Getty Images Glódís Perla Viggósdóttir tók við þýska bikarnum sem fyrirliði Bayern Munchen eftir 4-0 sigur í úrslitaleiknum gegn Wolfsburg. Brjáluð fagnaðarlæti Bæjara eftir þennan sögulega sigur má sjá hér fyrir neðan.
Wolfsburg hafði ellefu sinnum áður farið í úrslitaleik bikarsins en aldrei tapað. Úlfynjunum tókst hins vegar ekki að fagna tólfta sigrinum í röð og Bæjarar sannfærðu alla sem efuðust enn um að nýtt lið væri tekið við taumunum sem besta lið Þýskalands. Alexandra Popp upplifði þar mikil vonbrigði, hún hafði unnið alla ellefu úrslitaleikina með Wolfsburg en þurfti að líta í lægri haldi í sínum síðasta leik með liðinu. Alexandra Popp gekk tárvot af velli, alls óvön því að tapa bikarúrslitaleik. EPA/RONALD WITTEK Sigurinn hefði varla getað verið meira sannfærandi en eftir fína byrjun hjá Wolfsburg tók Bayern algjörlega völdin og vann 4-0. Þökk sé mörkum Georgia Stanway, Pernille Harder, Momoko Tanikawa og Arianna Cruso. View this post on Instagram Glódís Perla stóð vaktina í vörninni og hélt markinu hinumegin hreinu. Hún tók svo við bikarnum fyrir hönd Bayern eftir leik. Glódís hefur nú orðið Þýskalandsmeistari með Bayern fjögur ár í röð og bikarmeistari tvö ár í röð. Der Pokal für die Double-Siegerinnen! 🏆🤩 pic.twitter.com/0E6RWfpg5s— FC Bayern Frauen (@FCBfrauen) May 14, 2026 Mikil fagnaðarlæti brutust út eftir leik og fjölmargir stuðningsmenn höfðu lagt í hið langa ferðalag til Kölnar til að sjá úrslitaleikinn. Liðið skellti sér svo í tæplega sex tíma rútuferð aftur til Munchen þar sem frekari fögnuður mun taka við. Bayern varð tvöfaldur meistari í Þýskalandi á þessu tímabili og mun halda sigurhátíð á torginu fyrir framan ráðhúsið í Munchen næsta sunnudag. Bayern vann báða titlana sem í boði voru heima fyrir. Stefan Matzke - sampics/Getty Images
Þýski boltinn Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Liverpool - Chelsea | Stórleikur í deildarbikarnum Enski boltinn Fleiri fréttir Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Liverpool - Chelsea | Stórleikur í deildarbikarnum Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Bikar-Ísak skoraði í stórsigri „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjá meira