Viðskipti innlent

Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Tinna Sigrún Pétursdóttir er markaðsstjóri S4S.
Tinna Sigrún Pétursdóttir er markaðsstjóri S4S.

Ný Lindex verslun opnar í Kringlunni á morgun en öllum Lindex verslunum landsins var lokað þegar fyrri rekstraraðili hætti með umboðið, sem fór til S4S. Nýja verslunin verður opnuð í plássinu þar sem Next var áður, við hlið H&M.

Verslunin verður meðal stærstu Lindex verslana Evrópu, samtals um 955 fermetrar að stærð. Þá verður þetta fyrsta verslunin til að opna sem er hönnuð útfrá nýju verslanaútliti Lindex.

Viðskiptavinir Lindex hafa getað verslað vörur frá fyrirtækinu á lindex.is en í kjölfarið af opnun verslunar í Kringlunni er stefnt á að opna verslun í Smáralind fyrir lok mánaðarins og á Akureyri síðar á árinu.

„Við erum gríðarlega spennt að geta loksins tekið á móti viðskiptavinum í eina stærstu og glæsilegustu Lindex verslun Evrópu. Það hefur verið magnað að fylgjast með öllu teyminu vinna hörðum höndum, dag og nótt, til að undirbúa verslunina fyrir opnun. Við höfum fundið hversu vænt fólki þykir um Lindex vörumerkið og það gleður okkur mikið að geta boðið viðskiptavini velkomna inn í verslun Lindex á Íslandi á nýjan leik,“ er haft eftir Tinnu Sigrúnu Pétursdóttur, markaðsstjóra S4S, í tilkynningu.

Meðlimum Lindex-klúbbsins og gestum og gangandi í Kringlunni gefst kostur á að taka forskot á sæluna á sérstakri foropnun klukkan 16 í dag en blásið verður til formlegrar opnunarhátíðar milli klukkan 14 og 16 á morgun. 

Þar verður kaffibar og léttar veitingar í boði, auk glaðninga fyrir börnin.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×