Vill að lýst verði yfir neyðarástandi Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 17. maí 2026 14:15 Katrín Jakobsdóttir er formaður nefndarinnar. Vísir/Vilhelm Samevrópsk nefnd undir forystu Katrínar Jakobsdóttur, fyrrverandi forsætisráðherra Íslands, skorar á Alþjóðaheilbirgðismálastofnunina að lýsa yfir neyðarástandi í lýðheilsumálum á alþjóðavísu vegna loftslagsbreytinga. „
Á síðasta áratug hefur hlýnun jarðar aukist verulega og Evrópusvæðið er það svæði á jörðinni sem hlýnar hraðast. Þar hækkar hitastig tvöfalt hraðar en meðaltal á heimsvísu. Hröð hlýnun eykur líkurnar á að skyndilegum „vendipunktum“ í loftslagskerfinu verði náð, þar sem verulegar breytingar eiga sér stað í lykilkerfum jarðar. Tíminn til að koma í veg fyrir óafturkræfan skaða er að renna út,“ segir í fréttatilkynningu frá samevrópskri nefnd um loftslagsmál og heilsu undir forystu Katrínar. Nefndin hefur lagt fram sautján tillögur um hvað Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin og ríki ættu að gera næst en í nefndinni eru fyrrverandi ríkisstjórnarleiðtogar, fulltrúar alþjóðastofnana, ráðherrar og leiðtogar úr borgaralegu samfélagi. „Loftslagsváin er ógn við öryggi okkar, félagslega samheldni, mannréttindi og heilsu,“ er haft eftir Katrínu. Tillögurnar sautján ná yfir fjögur svið, að meðhöndla loftslagsbreytingar sem vaxandi ógn við heilbrigðisöryggi, umbreyta heilbrigðiskerfum, efla aðgerðir á staðbundnum vettvangi og endurbæta efnahags- og fjármálakerfi sem knýja áfram loftslagsvána. Aðalöryggisógnin Skorað er á ríkisstjórnarleiðtoga að setja loftslags- og heilbrigðismál á dagskrá þjóðaröryggisráða og virkja öll viðeigandi ráðuneyti. Bent er á að loftmengun frá brennslu jarðefnaeldsneytis veldur dauða hundruð þúsunda manna um alla Evrópu á ári. „Þar sem evrópskar ríkisstjórnar eru nú að beina opinberum útgjöldum í öryggismál til að bregðast við vaxandi alþjóðelgum þrýstingi, heldur nefndin því fram að loftslagsbreytingar séu í sjálfu sér aðalöryggisógnin,“ segir í fréttatilkynningunni. Fyrst og fremst skorar nefndin á Alþjóðaheilbirgðismálastofnunina að lýsa því yfir að loftslagsmál séu neyðarástand í lýðheilsumálum sem varðar alþjóðasamfélagið. Einnig eru lagðar til sérstakar tillögur til að bæta loftslagsþol heilbrigðiskerfa og draga úr losun þeirra á gróðurhúsalofttegundum, til að mynda með skyldubundinni þjálfun heilbrigðisstarfsfólks í loftlagsbreytingum og heilsu. Þá skorar nefndin á evrópsk stjórnvöld að endurskoða hvernig þau mæla framfarir. „Verg landsframleiðsla (VLF) telur neyslu jarðefnaeldsneytis sem hagvöxt en hunsar heilsufarslegan kostnað af völdum mengunar, efnahagslegar byrðar af völdum loftslagshamfara og velferð komandi kynslóða. Nefndin hvetur stjórnvöld og alþjóðasamfélagið til að byggja upp eftirlitskerfi sem nota mælikvarða sem setja heilsu, jöfnuð og umhverfislega sjálfbærni í forgrunn við ákvarðanatöku,“ segir í tilkynningunni.
Loftslagsmál Heilbrigðismál Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara Innlent Fleiri fréttir Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Sjá meira