Sjómenn hjá Eimskip boða verkföll Agnar Már Másson skrifar 17. maí 2026 19:31 Dettifoss er stærsta skip sem smíðað hefur verið fyrir Íslendinga. Hásetar og bátsmenn á skipum Eimskips hafa boðað ótímabundið verkfall á mánudaginn í næstu viku, 25. maí, náist samningar ekki milli skipafélagsins og Sjómannafélag Íslands. Hafnarstarfsmenn munu svo að óbreyttu leggja niður störf degi síðar. Aðgerðirnar geta haft veruleg áhrif á afköst í Sundahöfn og siglingaráætlun Dettifoss, Brúarfoss og Selfoss.
Í fréttatilkynningu sem send var út í dag skrifar Eimskip að sér og Faroe Ship hafi borist tilkynning um verkfallsboðun frá Sjómannafélagi Íslands (SÍ) þar sem boðað væri ótímabundið verkfall bátsmanna og háseta á eigin skipum félagsins – Brúarfossi, Dettifossi og Selfossi – frá kl. 12 mánudaginn 25. maí, náist samningar ekki fyrir þann tíma. „Þetta er nú bara til þess að fá þá að borðinu,“ segir Bergur Þorkelsson, formaður Sjómannafélags Íslands, í samtali við Vísi en hann staðfestir jafnframt boðaðar verkallsaðgerðir. Bergur Þorkelsson formaður Sjómannafélag Íslands Skipafélagið segir að hugsanlegt verkfall hafnarverkamanna í SÍ myndi draga úr afköstum í Sundahöfn þar sem um 40% starfsfólks í hafnarvinnu sé í SÍ. Komi til verkfalls á eigin skipum Eimskips muni það hafa áhrif á siglingaáætlun og skerða þjónustu. Starfsfólk félagsins leiti allra leiða til að takmarka áhrif hugsanlegra verkfalla á þjónustu við viðskiptavini. „Viðskiptavinum verður haldið upplýstum um stöðuna eftir því sem málum vindur fram,“ segir í tilkynningu skipafélagsins. „Þetta er bara áframhald af því sem áður,“ segir hann en SÍ hafði áður boðað tímabundið verkfall 12.-15. apríl á eigin skipum Eimskips en aflýsti því verkfalli þann 8. apríl. Þá var tímabundnu verkfalli vegna hafnarverkafólks sem boðað var þann 13. apríl frestað til tímabilsins 26.-28. maí og stendur sú boðun enn. Samningaviðræður hafi verið í gangi á milli þeirra, Samtaka atvinnulífsins og SÍ hjá ríkissáttasemjara þar sem tillögur hafi verið lagðar fram og Eimskipafélagið segist vona að samningar náist án þess að komi til boðaðra aðgerða. Bergur hjá SÍ segir að félagið hafi ekki náð samningum fyrir farmenn, þ.e. háseta og bátsmenn, á sæmilegum kjörum. Samkomulag við félagsmenn SÍ um skip félagsins rann út um síðustu áramót. Eimskip skrifar í tilkynningu að samkomulagið hafi tekið breytingum á gildistíma í takt við umsamdar launabreytingar stöðugleikasamninganna á almennum vinnumarkaði, auk viðbótarhækkana sem gerðar hafi verið sérstaklega fyrir viðkomandi störf. Bergur vill ekki gefa upp hverjar kröfur farmannanna eru. „Ég vil ekkert vera að opinbera þær strax,“ segir hann.
Eimskip Kjaramál Hafnarmál Skipaflutningar Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Fleiri fréttir Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Sjá meira