Allir leikmenn fá aðgang að kvensjúkdómalækni Sindri Sverrisson skrifar 19. maí 2026 14:46 Diljá Ýr Zomers og Sædís Rún Heiðarsdóttir spila með tveimur af bestu liðum norsku úrvalsdeildarinnar. Samsett/Getty Öllum leikmönnum úrvalsdeildar kvenna í fótbolta í Noregi hefur verið tryggður ókeypis aðgangur að kvensjúkdómalækni.
Á meðal leikmanna í deildinni eru íslensku landsliðskonurnar Diljá Ýr Zomers hjá Brann, Sædís Rún Heiðarsdóttir hjá Vålerenga og Selma Sól Magnúsdóttir hjá Rosenborg, sem og Daníela Dögg Guðnadóttir hjá nýliðum Álasunds. Toppserien, eins og norska deildin heitir á móðurmálinu, hefur nú í samstarfi við fyrirtækið Nørs tryggt leikmönnunum aðgengi að kvensjúkdómalækni. Tilgangurinn er að hvetja leikmenn til að sækja sér þekkingu og fá örugga leiðsögn um kvenheilsu en Nørs er með samnefnt app sem meðal annars hjálpar konum að fylgjast með tíðahringnum og sinni heilsu. „Við vitum að kvenheilsa er enn svið þar sem margar upplifa óvissu og skort á aðgengi að réttri sérfræðiþekkingu, sérstaklega í daglegu lífi afreksíþróttafólks. Þess vegna erum við mjög ánægð með að allir leikmenn í úrvalsdeildinni fái nú aðgang að spjalli við kvensjúkdómalækni í gegnum samstarf okkar við Nørs,“ segir Marianne Solheim, framkvæmdastjóri Toppfotball Kvinner. „Þetta er áþreifanleg aðgerð til að lækka þröskuldinn fyrir því að spyrja spurninga, fá örugga leiðsögn og tryggja betri eftirfylgni með hverjum leikmanni. Fyrir okkur snýst þetta um að breyta orðum um kvenheilsu í athafnir,“ bætir Solheim við.
Norski boltinn Mest lesið Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Körfubolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Sport „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Fleiri fréttir Varaforsetinn mildar afstöðu sína gagnvart Infantino Eins og óendurgoldin ást „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Tarik framlengir við Víking Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ „Það sem svíður mest“ Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Sjá meira