Innherji

Vextir hækkaðir sam­hliða horfum á minni hag­vexti og meira at­vinnu­leysi

Hörður Ægisson skrifar
Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri og formaður peningastefnunefndar, en eftir vaxtahækkunina í dag eru meginvextir Seðlabankans núna komnir á sama stað og þeir voru í marsmánuði 2025.
Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri og formaður peningastefnunefndar, en eftir vaxtahækkunina í dag eru meginvextir Seðlabankans núna komnir á sama stað og þeir voru í marsmánuði 2025. Vísir/Vilhelm

Annan fundinn í röð hefur peningastefnunefnd ákveðið að hækka meginvexti Seðlabankans um 25 punkta, sem var í samræmi við spár flestra greinenda, á sama tíma og ný þjóðhagsspá teiknar upp dekkri efnahagshorfur sem einkennast af minni hagvexti og meira atvinnuleysi. Nefndin segist reiðubúin að herða taumhald peningastefnunnar frekar en ekki er útlit fyrir að verðbólgan fari undir fjögur prósent fyrr en á seinni hluta næsta árs.

Allir fimm nefndarmenn peningastefnunefndar studdu ákvörðun um að hækka vextina úr 7,5 í 7,75 prósent. Stýrivextir Seðlabankans, sem höfðu fram að fundi nefndarinnar í marsmánuði farið lækkandi, eru núna komnir á sama stað og þeir voru fyrir fjórtán mánuðum síðan. Verðbólgan hefur haldist yfir fimm prósent á þessu ári og mælist núna 5,2 prósent.

Í yfirlýsingu nefndarinnar í morgun er bent á að verðbólguvæntingar hafi farið hækkandi, einkum til skamms tíma. Hækkun þeirra frá því að stríðsátök hófust við Persaflóa í lok febrúar er þó ekki eins mikil og í kjölfar innrásarinnar í Úkraínu fyrir fjórum árum. Þar vegur þungt, að sögn Seðlabankans, að spennan í þjóðarbúinu var töluvert meiri þá.

Samkvæmt nýbirtri spá Seðlabankans eru horfur á minni hagvexti og meira atvinnuleysi en spáð var í febrúar. Nú er spáð 1,6 prósenta hagvexti í ár sem er 0,4 prósentum minni vöxtur en spáð var í febrúar. Lakari horfur skýrast einkum af minni vexti innlendrar eftirspurnar og þá er talið að horfur í ferðaþjónustu hafi versnað á seinni árshelmingi. Sömuleiðis er útlit fyrir hægari efnahagsumsvif á árunum 2027 og 2028 en áður var reiknað með.

Í nýjum Peningamálum Seðlabankans kemur meðal annars fram að áfram sé að draga úr umsvifum á vinnumarkaði. Störfum er hætt að fjölga og atvinnuleysi hefur aukist. Þá hefur dregið úr ráðningaráformum fyrirtækja sem bendir til þess að áfram hægi á vinnumarkaði næsta misserið. Gert er ráð fyrir að atvinnuleysi verði að meðaltali um 5,7 prósent á þessu ári – fyrri spá taldi að atvinnuleysið yrði um 4,8 prósent – og það verði síðan um fimm prósent á árinu 2027.

Peningastefnunefndin, sem kemur ekki næst saman fyrr en eftir þrjá mánuði, bendir á það í yfirlýsingu sinni að mikil hækkun olíu- og hrávöruverðs og viðvarandi innlendur verðbólguþrýstingur hafi samhliða minni efnahagsumsvifum leitt til þess að verðbólguhorfur hafi einnig versnað. „Efnahagsaðstæður gætu þróast til verri vegar ef truflanir á alþjóðlegum olíumarkaði vara lengur en nú er gert ráð fyrir eða ef kjarasamningum verður sagt upp síðar á árinu,“ að sögn nefndarinnar.

Þrátt fyrir að búist sé við meiri slaka er nú talið að verðbólga minnki hægar en spáð var í febrúar. Gert er ráð fyrir að hún verði komin undir fjögur prósent um mitt næsta ár og verði að meðaltali 3,6 prósent á árinu, eða tæplega 1 prósentu meiri en ráðgert var í fyrri spá bankans. Talið er að hún verði ekki komin í markmið fyrr en snemma árs 2028.

Í yfirlýsingu nefndarinnar er vaxtahækkunin rökstudd með vísun til þessara verri verðbólguhorfa og hárra verðbólguvæntinga. Peningastefnunefndin sendir jafnframt þau skilaboð að hún sé tilbúin að herða taumhald peningastefnunnar enn frekar til þess að tryggja hjöðnun verðbólgu að markmiði þótt það gæti hægt enn frekar á efnahagsumsvifum.


Tengdar fréttir

Spá stórri vaxta­hækkun til að ná aðhaldinu á ný upp í „æski­legt stig“

Trúverðugleiki peningastefnunnar er „mjög laskaður“ eftir lang tímabil þar sem verðbólgan hefur verið umfram markmið og nefndin mun sennilega vilja ná fram sama aðhaldi og var áður en verðbólgan fór að rísa á nýjan leik undir lok síðasta árs, að mati hagfræðinga IFS, sem spá því að vextir hækki um fimmtíu punkta í næstu viku.

Nefndin „verður“ að hækka aftur vexti vilji hún viðhalda trúverðug­leika sínum

Við núverandi aðstæður þarf peningastefnunefnd Seðlabankans að senda skýr skilaboð til viðhalda trúverðugleika sínum, að sögn greinenda Acro, en ljóst er að verðbólguhorfur hafa ekki batnað frá síðustu vaxtahækkun fyrir tveimur mánuðum. Þeir telja líklegast að vextir hækki um 25 punkta í næstu viku, en alls ekki sé hægt að útiloka enn stærra skref.

Verðbólguþróunin í rétta átt og ætti að slá út af borðinu stóra vaxta­hækkun

Verðbólgumælingin í apríl reyndist vera í lægri kantinum miðað við meðalspá sex greinenda og ólíkt þróun síðustu mánaða voru verðhækkanir ekki á breiðum grunni, en undirliðir á borð við mat, drykk, fatnað og húsgögn stóðu nánast í stað. Skuldabréfafjárfestar brugðust vel við verðbólgutölunum sem ættu að slá út af borðinu vangaveltur um að Seðlabankinn hækki vextina um 50 punkta á næsta fundi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×