Innherji

Há­degis­verðurinn er hvorki ó­keypis né án af­leiðinga

Ritstjórn Innherja skrifar
Samskiptin á milli stjórnar og forstjóra Landsvirkjunar reyndust eldfim.
Samskiptin á milli stjórnar og forstjóra Landsvirkjunar reyndust eldfim. Vísir/Vilhelm

Millistjórnendur ræða fátt annað en samskiptavandann sem virðist hafa verið á milli stjórnar og fráfarandi forstjóra Landsvirkjunar – vanda sem leiddi til þess að Hörður Arnarson sagði að lokum upp störfum.

Nú hefur komið á daginn að stjórn félagsins hittist meðal annars á hádegisverðarfundum án forstjórans þótt lög geri ráð fyrir að hann sitji fund stjórnar. Fyrst þegar þetta kom fram veltu margir fyrir sér hvar stjórnin hefði eiginlega snætt, enda hafði engum sögum farið af slíkum fundum og enginn til frásagnar um þau fundarhöld fyrr en nú.

Sennilegasta kenningin var að stjórnarmenn Landsvirkjunar hefðu hist á Bambus í Borgartúni, en þar hefur enginn maður hefur nokkurn tíma stigið fæti inn. Aðrir töldu brotaviljann svo einbeittan að stjórnarmennirnir hefðu hreinlega sveigt tíma og rúm og fundað annaðhvort í Brauðbæ eða Hallargarðinum í Húsi verslunarinnar á þeim árum þegar stjórnarformenn ríkisfyrirtækja réðu lögum og lofum í landinu.

En eftir að Hörður létti af sér á Sprengisandi á dögunum og sagði frá stjórnarfundunum sem honum var ekki boðið á steig Brynja Baldursdóttir stjórnarformaður fram og sagði Hörð fara með rangt mál. Þessir stjórnarfundir hefðu verið haldnir með hans vitneskju í höfuðstöðvum fyrirtækisins og borinn hefði verið fram matur úr mötuneyti Landsvirkjunar. Hún bætti svo við að þessir fundir hefðu ekki verið eiginlegir stjórnarfundir þar sem stjórnin hefði aðeins verið að ræða fundarefni, skipulagningu og samstarf innan stjórnarinnar.

Millistjórnandanum þykir margt við þetta að athuga. Er stjórn ríkisfyrirtækis í markaðsráðandi stöðu á lokuðum raforkumarkaði að halda „óformlega“ stjórnarfundi? Fundi án fundargerða? Það er óneitanlega sérstakt að stjórn félags sem þá beið, svo dæmi sé tekið, úrskurðar vegna meintrar markaðsmisnotkunar að mati Samkeppniseftirlitsins gangi fram með þessum hætti.

Að ekki sé minnst á að stjórnin stormi inn í höfuðstöðvarnar þannig að starfsmenn taki eftir, til að funda án forstjórans einu sinni í mánuði. Þetta hlýtur að fá millistjórnendur til þess að springa úr forvitni og er í raun kjörin gróðrarstía fyrir tortryggni og kjaftasögur þótt allir kunni að vera vel meinandi.

Óformlegur spjallfundur útvalinna stjórnarmanna

Vafalaust hefur forstjórinn fengið spurningar frá undirmönnum sínum um hvað væri þarna á seyði. Hverju ætli hann hafi svarað? „Þau eru bara að borða og kjafta saman – hafa gaman, ekki vera að pæla í þessu.“ Í fjölmiðlum hefur Brynja stjórnarformaður gert lítið úr þessu og eftir henni hefur verið haft að þetta hafi allt saman verið voðalega óformlegt.

Millistjórnendur sitja að jafnaði ekki stjórnarfundi. Eigi að síður vita þeir að það fyrsta sem er gert á formlegum stjórnarfundi er að fara yfir dagskrá fundarins. „Eru ekki allir samþykkir þessari dagskrá? Næsta mál á dagskrá. Vinsamlegast gerið grein fyrir samskiptum á milli stjórnarfunda, bæði við forstjóra og einstaka stjórnarmenn. Nei, við vorum bara að tala um daginn og veginn áðan og það þarf ekki að bóka það. Vildum bara fá frítt að borða – það er svo gott mötuneyti hérna eins og í öðrum ríkisfyrirtækjum.“

Þegar ekki er gerð krafa um að allir stjórnarmenn mæti til leiks en forstjórinn er sérstaklega skilgreindur sem óvelkominn gestur, hættir þetta að líta út eins og saklaus undirbúningur stjórnarfundar. Í staðinn er kominn óformlegur spjallfundur útvalinna stjórnarmanna, haldinn fyrir nánast framan nefið á starfsfólkinu. Varla þarf að koma á óvart að slíkt fyrirkomulag sé til þess fallið að grafa undan trausti milli stjórnar og forstjóra.

Ekki bætir úr skák að þarna skapast kjöraðstæður fyrir óformlega ákvarðanatöku. Þegar hluti stjórnar kemur saman rétt fyrir stjórnarfund til að ræða dagskrána er hætt við að menn verði búnir að mynda sér skoðun á einstökum málum áður en eiginlegur fundur hefst. Forstjórinn fær ekki tækifæri til að koma upplýsingum á framfæri eða leiðrétta hugsanlegan misskilning og þeir stjórnarmenn sem ekki mættu til hádegisverðarins sitja sömuleiðis eftir.

Þegar sest er loks að stjórnarborðinu kann því að vera búið að afgreiða málin í hugum einhverra fundarmanna. Þá er stutt í að formaðurinn spyrji á léttu nótunum hvort nokkur ástæða sé til að ræða málið frekar. Hin eiginlega umræða verður þá lítið annað en formsatriði. Það þarf ekki einu sinni að gera ráð fyrir illum ásetningi til að sjá hversu óheppilegt þetta fyrirkomulag er, ekki síst þegar forstjórinn, sem ber ábyrgð á daglegum rekstri félagsins, er sérstaklega útilokaður frá samkomunni. Það er að minnsta kosti ekki langt þaðan yfir í þá háttsemi sem í daglegu tali er kölluð vinnustaðaeinelti.

Mannlegir innviðir á orkumarkaði

En það er fleira skrýtið í kýrhausnum í þessu dæmalausa máli. Nú hefur Landsvirkjun auglýst eftir nýjum forstjóra. Sá sem hefur umsjón með ráðningarferlinu er Sverrir Briem, ráðgjafi og einn eigenda Hagvangs. Svo skemmtilega vill til að Sverrir situr í valnefnd Daða Más Kristóferssonar fjármálaráðherra um stjórnir orkufyrirtækja og stærri ríkisfyrirtækja.

Brynja Baldursdóttir, stjórnarformaður Landsvirkjunar, og Sverrir Briem, ráðgjafi hjá Hagvangi.

Sami maður, sem kom að vali stjórnar Landsvirkjunar sem skipuð var í fyrra, hefur því aðkomu að ráðningu nýs forstjóra fyrirtækisins vegna uppsagnar þess sem sú sama stjórn nánast hrakti úr starfi.

Spretthópur í leit að nýju erindi

Talandi um allt í senn. Flestir vita að millistjórnendur eru áberandi meðal flokksbundinna Viðreisnarmanna.

Sumir þeirra fengu því póst á dögunum þar sem þeir eru beðnir um að taka þátt í könnun vegna starfs nýstofnaðs „spretthóps“ Viðreisnar. Athygli vakti að Heiða Kristín Helgadóttir er aðalsprautan í spretthópnum en honum er ætlað að leiða stefnumótun flokksins fram að næstu kosningum.

Heiða Kristín Helgadóttir, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Ingileif Friðriksdóttir á leið í partý.Vísir/Vilhelm

Með öðrum orðum: Heiða Kristín, sérstakur ráðgjafi utanríkisráðherra við þjóðaratkvæðisgreiðslu um eina pólitíska erindi Viðreisnar sem tapast og Össur Skarphéðinsson hefur kallað „frámunalega lélega kosningabaráttu“, er fengin til þess að leiða leitina að einhverju öðru erindi hreyfingarinnar.


Millistjórnandinn er vikulegur pistill og á ábyrgð ritstjórnar Innherja. Millstjórnandinn hefur um áratuga skeið starfað í íslensku atvinnulífi fæstum til gagns og flestum til ama. Hann eygir þó enn von til þess að fá starf hjá hinu opinbera.


Tengdar fréttir

Vill setja fimmtungs­hlut í Lands­virkjun á markað til að laða að er­lenda fjár­festa

Framkvæmdastjóri Birtu lífeyrissjóðs telur að skráning Landsvirkjunar á hlutabréfamarkað og sala á minnihluta í fyrirtækinu gæti laðað erlenda fjárfesta til landsins og gert íslenska markaðinn, sem sé núna „í þriðju deild í ensku“, að álitlegri fjárfestingarkost. Hann segir jafnframt að það sé ekki „góður bragur á því“ að haldnir hafi verið reglulegir óformlegir fundir stjórnar orkufyrirtækisins án þátttöku fráfarandi forstjóra og er þeirrar skoðunar að slíkt fyrirkomulag samræmist tæplega leiðbeiningum um góða stjórnarhætti fyrirtækja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×