Hugljúf kveðja Önnu: „Sé mann sem gaf þessu félagi af öllu hjarta“ Sindri Sverrisson skrifar 20. maí 2026 11:48 Lewandowski-fjölskyldan átti góða kveðjustund á Camp Nou á sunnudaginn. Getty/Joan Valls Tárin streymdu þegar Robert Lewandowski og fjölskylda hans kvaddi Camp Nou eftir síðasta heimaleik Pólverjans með Barcelona. Anna, eiginkona hans, skrifaði hugljúf kveðjuorð og þakkað Börsungum fyrir gjöful ár.
Lewandowski, sem verður 38 ára í sumar, kom til Barcelona frá Bayern München sumarið 2022 og vann þrjá Spánarmeistaratitla auk bikarmeistaratitils. Líkt og hjá Bayern raðaði hann inn mörkum á Spáni og hefur skorað alls 119 mörk í 191 leik fyrir Barcelona, þar af 82 mörk í 132 deildarleikjum. Lewandowski fékk sérstaka kveðjustund á sunnudaginn, eftir 3-1 sigur gegn Real Betis, og var þá með fjölskyldu sinni. Þau Anna hafa verið gift frá árinu 2013 og hún skrifaði fallega kveðju á Instagram. View this post on Instagram A post shared by Anna Lewandowska (@annalewandowska) „Ég veit ekki hvort orð geta raunverulega lýst því sem við finnum fyrir í dag 💙❤️ Barcelona gaf okkur meira en við hefðum nokkurn tíma getað ímyndað okkur. Tilfinningar sem munu fylgja okkur að eilífu, ótrúlegt fólk og minningar sem ómögulegt er að koma í orð. Þegar ég horfi á Robert í dag sé ég ekki bara einn af bestu fótboltamönnum sögunnar. Ég sé mann sem gaf þessu félagi af öllu hjarta, hvern einasta dag. Einhvern sem stoppaði aldrei, gafst aldrei upp og var innblástur fyrir milljónir,“ skrifaði Anna stolt af sínum manni og bætti við: „Takk Barcelona fyrir fallegasta kaflann og fyrir að láta okkur líða eins og heima. Við erum ekki að kveðja… við erum að segja sjáumst bráðlega! Tími fyrir nýtt ævintýri.“ Ekki liggur fyrir hvar það ævintýri verður og í síðustu viku sagðist Lewandowski ekki hafa tekið neina ákvörðun. „Það er enn 51 dagur [núna 41 dagur] þar til að samningur minn rennur út, svo ég hef enn tíma. Það er möguleiki á að fara í lægra skrifaða deild. Ég er næstum 38 ára en mér líður vel líkamlega og er að velta þessu fyrir mér. Núna gæti verið tímabært að leika sér og njóta lífsins. Ég mun hlusta á einhver tilboð og taka svo ákvörðun.“
Spænski boltinn Mest lesið Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Sjá meira