Íbúar í Alberta greiða atkvæði um aðskilnað frá Kanada Hólmfríður Gísladóttir skrifar 22. maí 2026 09:09 Smith hefur sjálf sagst munu greiða atkvæði gegn tillögunni. Getty/NurPhoto/Artur Widak Yfirvöld í Alberta í Kanada hyggjast boða til atkvæðagreiðslu um aðskilnað frá Kanada. Sjálfstæðissinnum hefur fjölgað í héraðinu, sem er ríkt af olíuauðlindum. Þeim þykja þeir vanræktir af stjórnvöldum í Ottawa.
Danielle Smith, héraðsstjóri Alberta, ákvað að boða til atkvæðagreiðslunnar eftir að sjálfstæðissinnum tókst að safna 300 þúsund undirskriftum. Þess ber þó að geta að andstæðingar tillögunnar söfnuðu 400 þúsund undirskriftum og skoðanakannanir benda til þess að fleiri íbúar séu á móti aðskilnaði en fylgjandi. Smith hefur sagst munu greiða atkvæði á móti tillögunni, enda sé það í takt við stefnu stjórnar hennar. Það sé þó ekki hægt að hunsa þær raddir sem hafa kallað eftir sjálfstæði, enda væri það bara til þess að slá mikilvægri og tilfinningalegri umræðu á frest. Alberta er ekki fyrsta ríkið sem boðar atkvæðagreiðslu um aðskilnað frá Kanada en tvívegis hefur verið kosið um málið í Quebec. Síðast var gengið til atkvæðagreiðslu árið 1995 en þá reyndist afar mjótt á munum. Um 51 prósent greiddi atkvæði á móti og 49 prósent með. Eins og fyrr segir eru íbúar í Alberta margir ósáttir við stjórnvöld, þar sem þeim þykir þau hafa tekið loftslagssjónarmið fram yfir mögulega héraðsins á því að nýta náttúruauðlindir sínar. Þá telja margir að Alberta leggi meira fram en hún fær til baka. Sjálfstæðissinnar eru þó ekki sameinaðir í afstöðu sinni og vilja ganga mislangt. Sumir vilja algjöran aðskilnað frá Kanada, á meðan aðrir vilja aukið sjálfræði. BBC greindi frá.
Kanada Mest lesið „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Erlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Innlent Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Innlent Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Fleiri fréttir Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Sjá meira