Norður-Kórea, íslensk stjórnmál og raunveruleikinn Mía Marselína Alexa Guðmundsdóttir skrifar 22. maí 2026 18:30 Á síðustu misserum hefur farið fram umræða um Sósíalistaflokkinn, hugmyndafræðilega afstöðu innan hans og tengsl ákveðinna einstaklinga við Norður-Kóreu, fyrst og fremst í gegnum Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu. Sú umræða er að mínu mati bæði nauðsynleg og löngu tímabær, ekki síst vegna þess hvernig rómantísering á einræðisríkjum og harðstjórn hefur fengið að lifa í jaðri íslensks stjórnmálaumhverfis án nægilegrar gagnrýni. Ég skrifa þetta sem einstaklingur sem tók sjálf þátt í slíku. Frá 2021 þar til nýlega aðhylltist ég öfgakennda túlkun á kommúnisma og tengdist hugmyndafræði sem ég aðhyllist ekki lengur. Ég lét ekki nægja að gagnrýna kapítalisma eða vestræn samfélög, heldur fór ég að líta á einræðisríki á borð við Norður-Kóreu og Kína í jákvæðu ljósi. Ég stofnaði Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu ásamt öðrum og tók þátt í starfsemi þess félags. Ég samsamaði mig hugmyndum sem réttlættu eða afsökuðu harðstjórn, ritskoðun og pólitíska kúgun. Í dag hafna ég þessum sjónarmiðum alfarið. Það sem skiptir þó máli er ekki aðeins hvaða hugmyndir ég aðhylltist, heldur hvernig ég hugsaði á þeim tíma. Á þessu tímabili glímdi ég við alvarlega andlega vanlíðan sem var síðar greint klínískt sem geðrof. Það hafði áhrif á raunveruleikaskyn mitt, dómgreind og færni til að meta upplýsingar á gagnrýnan hátt. Ég upplifði heiminn í mjög einföldum tvískiptingum þar sem flókin samfélagskerfi urðu að einni skýringu og einni lausn. Slík hugmyndafræðileg einföldun getur verið mjög aðlaðandi þegar einstaklingur er í uppnámi, vegna þess að hún skapar öryggis- og stöðugleikatilfinningu. Mér finnst nauðsynlegt að ræða alvarleika þess að innan Sósíalistaflokksins og í kringum Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu virðist vera til staðar raunverulegur stuðningur við hugmyndir og stjórnarhætti sem fela í sér ritskoðun, valdmiðstýringu, pólitíska kúgun og réttlætingu á einræðislegum stjórnarháttum. Það sem gerir það sérstaklega alvarlegt er að slík afstaða er ekki bundin við einstaklinga í andlegu uppnámi eða andlegum veikindum, heldur virðist þetta vera meðvituð hugmyndafræðileg afstaða. Þessi afstaða vekur upp spurningar um hvar mörkin liggja milli gagnrýni á kapítalisma og rómantiseringar einræðisríkja. Þegar ég lít til baka á þá atburðarrás sem ég upplifði geri ég mér grein fyrir hversu auðvelt er fyrir einstakling í viðkvæmri stöðu að dragast inn í einfalda heimsmynd sem veitir merkingu og stefnu, en stenst ekki raunverulega gagnrýna skoðun. Það er ekki séríslenskt fyrirbæri, heldur eitthvað sem við sjáum víða þar sem pólitísk vonbrigði og félagsleg einangrun mætast. Þegar andleg heilsa mín batnaði fór þessi mynd að brotna niður. Ég fór að meta gildi opins samfélags, fjölmiðlafrelsis og lýðræðislegra kerfa sem byggjast á kerfislegu aðhaldi, gagnrýni og valdaskiptingu. Ekki vegna þess að þau eru fullkomin, heldur vegna þess að þau gera ráð fyrir mistökum og takmörkunum mannlegra valdhafa. Ég skrifa þetta ekki til að afneita fortíð minni heldur til að veita samhengi og innsýn. Ég tek fulla ábyrgð á skoðunum mínum á þeim tíma og því pólítíska starfi sem ég tók þátt í. Samtímis er ég ánægð með að ég sagði skilið við þessar hugmyndir. Að sama leyti vil ég endilega sjá þessa tilhneigingu sumra innan Sósíalistaflokksins hverfa. Flokkurinn gæti notið mun meiri velgengni ef þessi hópur innan hans myndi hafna þessum öfgum og taka hugmyndum um lýðræði fagnandi. Sósíalisminn þarf ekki að vera kúgandi. Svipuð mynstur birtast þó ekki aðeins á yst á vinstri væng stjórnmála, heldur er slíkt einnig að finna í hægri-popúlískum og þjóðernissinnuðum hreyfingum. Þegar fólk upplifir óöryggi og vantraust getur öfgahægri hugmyndafræði orðið freistandi. Slík hugmyndafræði byggist á svipaðan hátt á einföldun raunveruleika og óvinavæðingu, þar sem flóknum samfélagsmálum er stillt upp sem baráttu eins hóps gegn ákveðnum óvinum eða valdakerfum. Orðræða ákveðinna Miðflokksmanna gæti talist dæmi um slíkar tilhneigingar að ná fótfestu hérlendis. Sem dæmi má nefna nýlegar ádeilur þeirra á réttindi og baráttu hinsegin fólks. Gaman væri að sjá Miðflokkinn segja skilið við þessar öfgar. Hægristefna þarf ekki að vera byggð á hatri. Öfgahugmyndir verða sjaldnast til í tómarúmi. Þær þrífast þar sem óöryggi, vantraust og einfaldar skýringar fá að taka yfir flókinn veruleika. Það er einmitt þess vegna sem gagnrýnin umræða skiptir máli - ekki aðeins um hugmyndir annarra, heldur líka um þær sem við sjálf freistumst til að trúa þegar lífið verður óstöðugt. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Norður-Kórea Sósíalistaflokkurinn Mest lesið Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson Skoðun Halldór 5.9.2026 Halldór Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Skoðun Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar