Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 22. maí 2026 17:59 Steinunn Þórðardóttir er formaður Læknafélags Íslands. Vísir/Vilhelm Formaður Læknafélags Íslands gerir athugasemd við að Tómas Guðbjartsson hafi ekki fengið að verja sig fyrir dómi. Niðurstaða héraðsdóms sé að miklu leyti á skjön við rannsóknarskýrslu sem unnin var.
Héraðsdómur Reykjavíkur viðurkenndi bótaskyldu ríkisins vegna tjóns og miska ekkju og þriggja sona Andemariams Teklesenbet Beyene. Hann var sendur til Svíþjóðar í aðgerð þar sem plastbarki var græddur í hann. Seinna kom í ljós að aðalskurðlæknirinn hafði ekki fengið leyfi siðanefndar fyrir aðgerðinni en hún dró Andemariam til dauða þremur mánuðum eftir framkvæmd hennar. Meðferðarlæknir Andemariam var Tómas Guðbjartsson skurðlæknir. Hann tók einnig þátt í aðgerðinni örlagaríku í Svíþjóð. Í stefnu ekkjunnar sagði að Tómas bæri mesta ábyrgð á því sem kallað er óforsvaranleg læknismeðferð en frá því að aðgerðin var framkvæmd og til dauðadags hefði Andemariam upplifað óbærilegar þjáningar sem og hans nánustu. Einn læknir sérstaklega tekinn fyrir Dómurinn er afdráttarlaus um ábyrgð Tómasar í málinu sem Steinunn Þórðardóttir formaður Læknafélags Íslands er undrandi á. „Það kemur okkur á óvart að svo mikil áhersla sé lögð á einn nafngreindan lækni, sem var ekki aðili að málinu og ekki kallaður fyrir dóm og hafði ekki tækifæri á að tjá sig,“ segir hún. Niðurstaða héraðsdóms sé frábrugðin skýrslu Páls Sveinssonar að því leyti. „Þessi niðurstaða er ekki alveg í takt við þá skýrslu, þar er ábyrgðin fyrst og fremst talin liggja í Svíþjóð. Hér er hún meira færð yfir á einn lækni sérstaklega. Það kom okkur á óvart,“ segir Steinunn. „Við eru áhugasöm að sjá hvernig það er reifað í dómnum þegar við fáum aðgang að honum,“ segir hún svo. Mikilvægt að lært verði af málinu Aðspurð segir hún ómögulegt að segja til um framhald málsins. „En við viljum koma þeim skilaboðum á framfæri að það er gríðarlega mikilvægt inn í framtíðina að lært verði af þessu máli og að það endurtaki sig aldrei í íslensku heilbrigðiskerfi.“
Plastbarkamálið Heilbrigðismál Landspítalinn Mest lesið Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Fleiri fréttir Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Sjá meira