Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Eiður Þór Árnason skrifar 25. maí 2026 18:17 Orri Björnsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins, Karolína Helga Símonardóttir, oddviti Viðreisnar og Hildur Rós Guðbjargardóttir, oddviti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði. Sjálfstæðisflokkurinn, Viðreisn og Samfylkingin hafa náð samkomulagi um meirihlutasamstarf í Hafnarfirði. Til stendur að kynna meirihlutasáttmála flokkanna á félagsfundum þeirra á morgun. Í kjölfarið hyggjast oddvitar undirrita sáttmálann og kynna efni hans á blaðamannafundi í Hamranesi.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá oddvitum flokkanna þriggja í Hafnarfirði. Meirihlutaviðræður í sveitarfélaginu hafa verið viðburðarríkar en fyrst stóð til að endurnýja samstarf Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins sem mynduðu meirihluta á síðustu tveimur kjörtímabilum. Samfylkingin missti tvo bæjarfulltrúa í kosningunum fyrir viku og bættu Framsókn og Viðreisn í stað þess við sig einum manni hvor. Miðflokkurinn fékk einnig mann inn í bæjarstjórn en Sjálfstæðisflokkurinn missti bæjarfulltrúa og fór úr fjórum í þrjá. Sjálfstæðisflokkurinn, Viðreisn og Samfylkingin eru núna með sjö fulltrúa af ellefu í bæjarstjórn Hafnarfjarðar. Kjörnir bæjarfulltrúar í bænum eftir nýafstaðnar kosningar. Bæjarstjórastólnum kippt undan Framsókn Fljótlega eftir kosningarnar 16. maí hófu Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn viðræður en eftir nokkra daga ákváðu Sjálfstæðismenn að slíta viðræðum við flokkinn. Vísuðu þeir þar til meints alvarlegs trúnaðarbrests. Hildur Rós Guðbjargardóttir, oddviti Samfylkingarinnar, útilokaði í kjölfarið samstarf við Framsókn. Bæjarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins vísaði til þess að Framsókn hefði handsalað samkomulag við aðra flokka um meirihlutaviðræður án vitneskju þeirra. Valdimar Víðisson, oddviti Framsóknar, og aðrir bæjarfulltrúar flokksins hafa alfarið hafnað því að þeir hafi gerst sekir um trúnaðarbrest. Orri Björnsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins, hefur sagt að samningar hafi tekist um að Valdimar yrði næsti bæjarstjóri Hafnarfjarðar áður en viðræðum var slitið. Oddvitar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Samfylkingarinnar í Hafnarfirði tilkynntu á laugardag að þeir hefðu byrjað formlegar viðræður um meirihlutamyndun. Vinna við málefnasamning væri þegar hafin og stefnt að því að kynna hann á þriðjudag strax eftir hvítasunnuhelgi líkt og nú hefur verið boðað. Fréttin hefur verið uppfærð.
Hafnarfjörður Samfylkingin Sjálfstæðisflokkurinn Viðreisn Sveitarstjórnarkosningar 2026 Tengdar fréttir Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Bæjarstjórnarflokkar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Samfylkingar í Hafnarfirði hafa ákveðið að hefja formlegar viðræður um meirihlutasamstarf næstu fjögur árin. 23. maí 2026 17:26 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira
Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Bæjarstjórnarflokkar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Samfylkingar í Hafnarfirði hafa ákveðið að hefja formlegar viðræður um meirihlutasamstarf næstu fjögur árin. 23. maí 2026 17:26