Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Sigurgeir Þorkelsson skrifar 26. maí 2026 20:55 Sjö bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Samfylkingar í Hafnarfirði ásamt nýjum bæjarstjóra, Þórði Þórarinssyni, sem stendur hér lengst til hægri. Vísir/Lýður Oddvitar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Samfylkingar í Hafnarfirði kynntu fyrir stundu málefnasamning sinn undir kjörorðunum: „Frelsi, ábyrgð, velferð og lífsgæði.“
Orri Björnsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins, verður formaður bæjarráðs. Oddviti Viðreisnar, Karólína Helga Símonardóttir, og oddviti Samfylkingar, Hildur Rós Guðbjargardóttir, munu skipta með sér embætti forseta bæjarstjórnar. Meirihlutinn er með sjö menn af ellefu í bæjarstjórn, Sjálfstæðisflokkurinn hefur þrjá en Viðreisn og Samfylking tvo hvor. Meirihlutinn hefur ákveðið að ráðinn verði bæjarstjóri. Sá heitir Þórður Þórarinsson og gegndi stöðu framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins um ellefu ára skeið, frá 2014 til 2025. Í viðtali við fréttastofu segir hann að hann muni gegna stöðunni sem ópólitískur bæjarstjóri. Oddvitarnir þrír bjartsýnir Berghildur Erla Bernharðsdóttir, fréttamaður Sýnar, ræddi við oddvitana eftir að þau höfðu undirritað samstarfssáttmálann. Þau segjast spennt fyrir samstarfinu. „Ef þú horfir á tölurnar erum við með 60% kjósenda á bak við okkur, þetta hefur ekki gerst síðan 1974 og er sögulegt,“ segir Karólína Helga frá Viðreisn. Karólína Helga Símonardóttir er oddviti Viðreisnar í Hafnarfirði. Vísir/Lýður Orri oddviti Sjálfstæðisflokks sat í meirihluta á síðasta kjörtímabili en segir þetta nýjan meirihluta. „Það eru örlítið breyttar áherslur en ég held að við séum að halda áfram að gera Hafnarfjörð að besta bæ á Íslandi. Það er markmiðið og við munum vinna að því samhent og einbeitt.“ Orri Björnsson er oddviti Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði. Vísir/Lýður Hildi Rós oddvita Samfylkingarinnar óraði ekki fyrir því að flokkurinn yrði í meirihluta á kjörtímabilinu, en hann fór úr fjórum bæjarfulltrúum í tvo í kosningunum. „Nei, það var ekki á kortinu, við vorum tilbúin að vera með aðhald eins og við höfum sýnt síðustu kjörtímabil í minnihluta.“ Hildur Rós Guðbjargardóttir er oddviti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði.Vísir/Lýður Aðspurður hvort ekki hafi komið til greina að einn oddvitanna yrði bæjarstjóri segir Orri það aldrei hafa komið alvarlega til skoðunar. „Þetta var besta mögulega lausnin upp á sátt,“ bætir Karólína Helga við. Hildur segir fjárhagsstöðu bæjarins ekki nógu sterka. „Við þurftum einhvern rekstrarmann, þá er bara mjög gott að fá einhvern utanaðkomandi, og þá kannski sérstaklega til að leiða þrjá flokka saman.“ Klippa: Viðtal við oddvita nýs meirihluta í Hafnarfirði Á ýmsu hefur gengið í meirihlutaviðræðum í Hafnarfirði Ítarlega hefur verið greint frá gangi mála í meirihlutaviðræðum í Hafnarfirði síðustu daga en þar hefur gengið á ýmsu. Ballið byrjaði strax í beinni útsendingu á kosninganótt þegar fyrstu tölur voru kynntar og ljóst var að Samfylkingin hefði beðið afhroð. Oddviti listans, Guðmundur Árni, kynnti þá þegar að hann hygðist íhuga stöðu sína. Miklar vendingar urðu í meirihlutaviðræðum í vikunni sem leið en fyrst stóð til að endurnýja samstarf Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins sem mynduðu meirihluta á síðustu tveimur kjörtímabilum. Þær viðræður fóru svo fljótt út um þúfur þar sem Valdimar Víðisson bæjarstjóri og oddviti Framsóknarmanna var sakaður um trúnaðarbrest. Valdimar hefur vísað því á bug en skaðinn var skeður. Samfylkingin útilokaði í kjölfarið einnig samstarf við Framsókn og Viðreisn sagðist hvorki spennt fyrir samstarfi við Framsókn né Miðflokkinn. Í framhaldinu hófust viðræður framboðanna þriggja sem nú hafa náð saman. Þá sagði oddviti Miðflokksins að honum hefðu ekki borist mörg símtöl. Undirskriftarlisti fyrir fráfarandi bæjarstjóra Eftirsjá virðist vera eftir fráfarandi bæjarstjóra, Valdimar Víðissyni, en stofnað hefur verið til undirskriftalista þar sem því er mótmælt að Framsóknarflokkurinn sé ekki hluti af nýjum meirihluta. Flokkurinn fékk rúm tuttugu og fjögur prósent í kosningunum og bætti við sig tveimur mönnum. Undirskriftarlistinn hefur vaxið hratt í dag en þegar þetta er skrifað nálgast fjöldi undirritaðra tvö þúsund. Valdimar hefur sagt að síðustu daga hafi verið krefjandi og að ýmislegt hafi verið sagt sem hann taki nærri sér. Hann segist ganga stoltur frá borði og munu nú taka sér nokkurra vikna frí. Samstarfsamning hins nýja meirihluta má finna hér:
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sjálfstæðisflokkurinn Viðreisn Samfylkingin Hafnarfjörður Tengdar fréttir Þakklátur fyrir traustið Kæri Hafnfirðingur. Hafnarfjörður er dásamlegur bær. Bær með sögu, hjarta og mikla sál. 15. maí 2026 07:03 Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Sjálfstæðisflokkurinn, Viðreisn og Samfylkingin hafa náð samkomulagi um meirihlutasamstarf í Hafnarfirði. Til stendur að kynna meirihlutasáttmála flokkanna á félagsfundum þeirra á morgun. Í kjölfarið hyggjast oddvitar undirrita sáttmálann og kynna efni hans á blaðamannafundi í Hamranesi. 25. maí 2026 18:17 Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Valdimar Víðisson oddviti Framsóknar í Hafnarfirði segir ólíka túlkun á handabandi snurðan á þræði meirihlutaviðræðna. Hann telur þó alla vinna af heilindum og vonast til að Framsókn komist aftur að borðinu. 22. maí 2026 20:32 Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Bæjarstjórnarflokkar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Samfylkingar í Hafnarfirði hafa ákveðið að hefja formlegar viðræður um meirihlutasamstarf næstu fjögur árin. 23. maí 2026 17:26 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira
Þakklátur fyrir traustið Kæri Hafnfirðingur. Hafnarfjörður er dásamlegur bær. Bær með sögu, hjarta og mikla sál. 15. maí 2026 07:03
Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Sjálfstæðisflokkurinn, Viðreisn og Samfylkingin hafa náð samkomulagi um meirihlutasamstarf í Hafnarfirði. Til stendur að kynna meirihlutasáttmála flokkanna á félagsfundum þeirra á morgun. Í kjölfarið hyggjast oddvitar undirrita sáttmálann og kynna efni hans á blaðamannafundi í Hamranesi. 25. maí 2026 18:17
Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Valdimar Víðisson oddviti Framsóknar í Hafnarfirði segir ólíka túlkun á handabandi snurðan á þræði meirihlutaviðræðna. Hann telur þó alla vinna af heilindum og vonast til að Framsókn komist aftur að borðinu. 22. maí 2026 20:32
Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Bæjarstjórnarflokkar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Samfylkingar í Hafnarfirði hafa ákveðið að hefja formlegar viðræður um meirihlutasamstarf næstu fjögur árin. 23. maí 2026 17:26