Advania lýkur kaupum á Evolv Lovísa Arnardóttir skrifar 27. maí 2026 08:17 Hildur Einarsdóttir forstjóri Advania á Íslandi ásamt Sigurði Davíð Stefánssyni og Eyþóri Loga Þorsteinssyni, stofnendum Evolv. BIGS Advania hefur nú lokið kaupum á íslenska hugbúnaðarfyrirtækinu Evolv sem sérhæfir sig í sjálfvirknivæðingu. Í tilkynningu kemur fram að Samkeppniseftirlitið hafi ekki gert athugasemdir við samruna fyrirtækjanna og hafi lokið meðferð málsins. „
Evolv hefur undanfarin ár drifið sjálfvirknivæðingu fjölda fyrirtækja og stofnana. Gildi Evolv og stefna falla mjög vel að sýn Advania og við hlökkum mikið til að vinna í sameiningu að því að fullnýta þau tækifæri sem nýjasta tækni skapar fyrir viðskiptavini okkar,“ segir Hildur Einarsdóttir forstjóri Advania, í tilkynningu um samrunann. Í tilkynningu segir að hjá Evolv starfi 30 manna hópur sem verði hluti af teymi 600 sérfræðinga Advania á Íslandi og flytji í höfuðstöðvar fyrirtækisins í Guðrúnartúni síðar á þessu ári. „Advania samstæðan stefnir hraðbyri að því að vera leiðandi þjónustuaðili fyrir gervigreind og sjálfvirknivæðingu í Norður-Evrópu og byggja kaupin á Evolv undir þá stefnu á Íslandi. Lausnir Evolv hafa nú þegar sannað gildi sitt í umbreytingu innan fjölda fyrirtækja og mun samanlagður kraftur fyrirtækjanna skapa mikið virði fyrir okkar viðskiptavini. Að sama skapi sjáum við fyrir okkur að lausnir Evolv geti þjónustað erlenda viðskiptavini Advania samstæðunnar víðs vegar um Evrópu,“ segir Þórður Ingi Guðmundsson forstöðumaður Gervigreindarseturs Advania. „Frá stofnun hefur markmið Evolv verið að hjálpa fyrirtækjum að umbreyta rekstri sínum með sjálfvirknivæðingu og snjallri nýtingu tækni. Með því að sameinast Advania fáum við enn sterkari vettvang til að þróa lausnir okkar áfram, styðja stærri og fjölbreyttari hóp viðskiptavina og nýta þau tækifæri sem felast í þeirri umbreytingu sem nú á sér stað á vinnumarkaði,“ segir Eyþór Logi Þorsteinsson, stofnandi Evolv, og Sigurður Davíð Stefánsson, annar stofnandi fyrirtækisins, tekur undir það: „Við höfum byggt upp einstaka þekkingu og öflugt teymi hjá Evolv og sjáum mikil tækifæri í því að sameina þá sérhæfingu við umfang og innviði Advania. Sameinað fyrirtæki verður í sterkri stöðu til að leiða þróun á sviði sjálfvirknivæðingar og gervigreindar á Íslandi og jafnframt sækja af meiri krafti á erlenda markaði.“
Tækni Gervigreind Samkeppnismál Kaup og sala fyrirtækja Mest lesið „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Greiðsluáskorun Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Fleiri fréttir „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Sjá meira